Þú getur nálgast yfirlit yfir virkan feril í Uglu þér að kostnaðarlausu undir Uglan mín → Vottorð og námsferilsyfirlit.

Brautskráðir nemendur frá Háskóla Íslands (eftir 2015) geta nálgast staðfest námsferilsyfirlit með rafrænu innsigli bæði á íslensku og ensku endurgjaldslaust inni á island.is.

Ef skila þarf staðfestum gögnum á pappír er hægt að fá stimplað og undirritað námsferilsyfirlit á Þjónustuborðinu Háskólatorgi gegn framvísun skilríkja eða sent í bréfpósti á lögheimili þitt. Rafrænt innsiglað námsferilsyfirlit er einnig hægt að panta með því að senda tölvupóst á haskolatorg@hi.is. Yfirlit kostar 350 kr. fyrir hvern námsferil.

Sjá einnig:

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil