Við brautskráningu færð þú afhent skírteini, skírteinisviðauka og námsferilsyfirlit með brautskráningu. Skírteinið og viðaukinn eru aldrei endurútgefin en þú getur komið með frumritin á Þjónustuborðið Háskólatorgi þar sem tekið er afrit og það staðfest með stimpli og undirskrift. Afrit kostar 350-1.400 kr.

Í mörgum tilvikum eru afrit skírteina til á Þjónustuborðinu Háskólatorgi. Ekki er hægt að útbúa rafrænt innsiglað pdf skjal af skírteini eða skírteinisviðauka.

Brautskráðir nemendur frá Háskóla Íslands (eftir 2015) geta nálgast staðfest námsferilsyfirlit með rafrænu innsigli bæði á íslensku og ensku endurgjaldslaust inni á island.is.

Ef skila þarf námsferilsyfirliti á pappír er hægt að fá stimplað og undirritað námsferilsyfirlit á Þjónustuborðinu Háskólatorgi gegn framvísun skilríkja eða sent í bréfpósti á lögheimili þitt. Yfirlit kostar 350 kr. fyrir hvern námsferil.

Sjá einnig:

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil