Upplýsingatæknisvið Háskóla Íslands hefur meðal annars umsjón með Uglu, SmáUglunni, Eduroam (þráðlaust net Háskólans), tölvuverum og prenturum á háskólasvæðinu.
Sviðið rekur Tölvuþjónustu Upplýsingatæknisviðs sem staðsett er á 2. hæð á Háskólatorgi þar sem starfsmenn leiðbeina notendum og veita aðstoð við tölvutengd vandamál.
Leiðbeiningar fyrir þá þjónustu sem Upplýsingatæknisvið veitir má finna á Þjónustumiðju Háskóla Íslands.