Nemendaráðgjöf Háskóla Íslands veitir nemendum margskonar stuðning og þjónustu á meðan á námi stendur. Þar færð þú ráðgjöf um vinnubrögð í háskólanámi, prófundirbúning og próftækni.

NHÍ veitir fræðslu og ráðgjöf varðandi atvinnuleit, atvinnuviðtöl, gerð ferilskrár o.þ.h.

Þú getur leitað til NHÍ vegna sértækra úrræða í námi og fengið persónulega og sálfræðilega ráðgjöf, úrræði og ráðgjöf vegna fötlunar eða hömlunar og ráðgjöf í námsvali.

Starfsfólk Nemendaráðgjafar heldur fjölda gagnlegra námskeiða, t.d. um námstækni, vinnu við lokaverkefni, prófundirbúning, markmiðasetningu og tímastjórnun. Nemendaráðgjöf tekur einnig vel á móti þeim sem hyggja á nám við Háskóla Íslands.

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil