Ef þú veikist og getur ekki mætt til prófs þarftu að tilkynna veikindi með tölvupósti til Nemendaskrár, nemskra@hi.is, innan þriggja daga frá prófdegi.
Ef þú vilt taka sjúkrapróf skráir þú þig í prófið í Uglu með því að smella á bláa borðann sem birtist efst á síðunni 1-2 dögum eftir að þú tilkynntir veikindi.
Vegna hlutaprófa geta deidir farið fram á að læknisvottorði sé skilað og er þeim skilað til skrifstofu deildar eða viðkomandi kennara.
Nánari upplýsingar um veikindi í prófi eru á upplýsingasíðu um próf.