Hægt er að bóka stofu fyrir hópavinnu einu sinni í viku í allt að þrjá tíma. Til að bóka þarf að senda póst á kennslustofur@hi.is. Í póstinum verður að taka fram nafn, kennitölu, námskeið og námskeiðsnúmer og nöfn þeirra sem eru í hópnum.
Sá sem biður um stofuna ber sjálfkrafa ábyrgð á henni og sér til þess að ekki sé verið með mat, gengið sé vel um, borðum og stólum rétt raðað upp, dyrum og gluggum lokað og slökkt á skjávarpa.
Athugaðu að beiðnir um stofur þurfa að berast á hefðbundnum vinnutíma og með 2-3 klst. fyrirvara.
Um nemendafélög gilda sömu umgengnisreglur. Formaður nemendafélags þarf að óska eftir stofunni í tölvupósti og taka skal fram heiti nemendafélags sem og fjöldann í hópnum.
Á Landsbókasafni – Háskólabókasafni er einnig að finna þrjú hópvinnuherbergi, eitt á 3. hæð og tvö á 4. hæð. Þau taka 3-10 manns. Hægt er að bóka hópvinnuherbergi á bókunarvef safnsins.