Meginreglan er sú að heimilt er að þreyta próf í hverju námskeiði tvisvar. Ef þú fellur eða mætir ekki í lokapróf er þér heimilt að taka það aftur næst þegar lokapróf er haldið í viðkomandi námskeiði svo lengi sem það er innan árs frá upphaflegu prófi.
Auk þess er deildum heimilt, í samráði við prófstjóra, að halda endurtökupróf í einstökum námskeiðum. Slík endurtökupróf eru einungis fyrir stúdenta sem áður hafa þreytt próf í viðkomandi námskeiði.
Greiða þarf 6.000 kr. fyrir hverja skráningu í endurtökupróf. Þú skráir þig í endurtökupróf með því að smella á borða í Uglu eða á Þjónustuborðinu Háskólatorgi.
Upplýsingar um próftímabil endurtökuprófa má sjá í kennslualmanaki.
Sjá nánar í reglum um endurtöku prófa.