Í gamla prentkerfinu þá uppfærðist staða prentkvóta ekki fyrr en um nóttina.
Áttir þú til dæmis 50 einingar að morgni gast þú prentað 50 síður mörgum sinnum yfir daginn en þegar prentkvóti uppfærist eftir miðnætti fór hann í mínus. Þú þarft því að greiða fyrir allar umfram síður sem þú hefur prentað út áður ásamt þeim fjölda blaðsíðna sem þú vilt eiga næst þegar þú kaupir prentkvóta.
Í Uglu, undir Tölvuþjónusta → Prentkvóti, sérðu fjölda prentkvótaeininga sem þú átt.
Einnig er mjög mikilvægt að þú munir eftir að skrá þig út úr tölvum í tölvuverum til að næsti notandi geti ekki prentað út á þínum aðgangi.