- Hefurðu minnst 5 ára reynslu af járningum?
- Viltu öðlast færni til að uppfylla alþjóðlega gæðastaðla?
- Langar þig að öðlast sérhæfingu í hófhirðu og járningum íslenska hestsins?
Sérhæft íslenskt járningamannapróf – Icelandic specialist farrier exam
Námið miðar að því að nemendur öðlist nauðsynlega þekkingu og færni til að uppfylla alþjóðlega gæðastaðla og prófkröfur sem gilda um starfsréttindi járningamanna. Lögð er áhersla á sérhæfingu í hófhirðu og járningum íslenska hestsins.
Námið spannar eitt skólaár og skiptist í lotukennslu á Hólum og fjarnám, alls 30 einingar (ECTS) og er samsett af verklegri og fræðilegri kennslu.
Námið er eingöngu ætlað nemendum með mikla reynslu í járningum. Kennt er á ensku.
a) Framhaldsskólapróf eða sambærileg menntun/reynsla.
b) Að lágmarki 5 ára reynsla af járningum.
c) Fylgigögn: ferilsskrá , stuttri greinargerð um bakgrunn í járningum og áhuga á þátttöku í þessu námskeiði.
Í kjölfarið fer fram netviðtal.
Ljúka þarf 30 einingum til að fá vottorð um námslok.
Uppsetning náms
Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.
Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.
- Fyrsta ár
- Haust
- Horse biology and management
- The Icelandic horse
- Vor
- The farriery profession
- Specialized farriery
- Equipment, materials, general farriery
Horse biology and management (HBM1008190)
sjá ensku
The Icelandic horse (IHJ1102190)
Íslenski hesturinn, saga hans, ræktun og útbreiðsla á alþjóðavettvangi. Fjallað er um helstu einkenni kynsins, með sérstakri áherslu á lífaflfræði, gangtegundir og sköpulag, auk matskerfis við kynbótamat hrossa og reglna og reglugerða um íþróttakeppni. Unnið er með greiningu á gangtegundum og sköpulagi. Einnig er gefið yfirlit yfir íslenska hestamennsku og atvinnugreinina í kringum íslenska hestinn, upprunaland hans og skipulag alþjóðasamtaka um kynið.
The farriery profession (FPS1202190)
Fagstétt járningamannsins, siðareglur, alþjóðleg starfsleyfi og formlegt nám í faginu. Fjallað er um kennslufræðileg grundvallaratriði í starfsmenntun, fræðsluhlutverk járningamannsins og samskipti við viðskiptavini. Einnig er farið yfir rekstur járningafyrirtækja, markaðinn og framtíðarþróun með áherslu á velferð hrossa og járningar.
Specialized farriery (SFJ1410190)
Smíðatækni og málmsmíði, ásamt kynningu á handverki og faglegum vinnubrögðum. Gerð sérhæfðra járningaáætlana. Mat á hrossum með tilliti til frammistöðu og heilbrigðis hreyfikerfis. Fjallað er um eiginleika og notkun allra helstu efna sem nýtt eru við járningar. Áhersla er lögð á viðeigandi fagheiti og hugtakanotkun ásamt skýrum og faglegum samskiptum.
Equipment, materials, general farriery (EMG1308190)
Járningar af háum faglegum og handverkslegum gæðum, með áherslu á aðlögun að þörfum hvers hests. Meðhöndlun, notkun og viðhald verkfæra og búnaðar. Hófhirða og hófverkun járnalausra hesta með það að markmiði að viðhalda heilbrigði hófanna. Smíðatækni. Mat á gæðum járninga. Þekking á eiginleikum og notkun ólíkra efna sem notuð eru við járningar. Heilbrigði og öryggi á vinnustað.
- Haust
- Námskeiðslýsing
sjá ensku
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍslenski hesturinn, saga hans, ræktun og útbreiðsla á alþjóðavettvangi. Fjallað er um helstu einkenni kynsins, með sérstakri áherslu á lífaflfræði, gangtegundir og sköpulag, auk matskerfis við kynbótamat hrossa og reglna og reglugerða um íþróttakeppni. Unnið er með greiningu á gangtegundum og sköpulagi. Einnig er gefið yfirlit yfir íslenska hestamennsku og atvinnugreinina í kringum íslenska hestinn, upprunaland hans og skipulag alþjóðasamtaka um kynið.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
NámskeiðslýsingFagstétt járningamannsins, siðareglur, alþjóðleg starfsleyfi og formlegt nám í faginu. Fjallað er um kennslufræðileg grundvallaratriði í starfsmenntun, fræðsluhlutverk járningamannsins og samskipti við viðskiptavini. Einnig er farið yfir rekstur járningafyrirtækja, markaðinn og framtíðarþróun með áherslu á velferð hrossa og járningar.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingSmíðatækni og málmsmíði, ásamt kynningu á handverki og faglegum vinnubrögðum. Gerð sérhæfðra járningaáætlana. Mat á hrossum með tilliti til frammistöðu og heilbrigðis hreyfikerfis. Fjallað er um eiginleika og notkun allra helstu efna sem nýtt eru við járningar. Áhersla er lögð á viðeigandi fagheiti og hugtakanotkun ásamt skýrum og faglegum samskiptum.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEMG1308190Equipment, materials, general farrierySkyldunámskeið8Skyldunámskeið á námsleiðinni8 einingar, ETCSNámskeiðslýsingJárningar af háum faglegum og handverkslegum gæðum, með áherslu á aðlögun að þörfum hvers hests. Meðhöndlun, notkun og viðhald verkfæra og búnaðar. Hófhirða og hófverkun járnalausra hesta með það að markmiði að viðhalda heilbrigði hófanna. Smíðatækni. Mat á gæðum járninga. Þekking á eiginleikum og notkun ólíkra efna sem notuð eru við járningar. Heilbrigði og öryggi á vinnustað.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.
Möguleikar
Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.
Skilyrði
Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:
- 90 ECTS einingar í grunnnámi
- 60 ECTS einingar í framhaldsnámi
Námskeið metin til eininga
Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.
Að námi loknu gætur þú meðal annars starfað við:
- Járningar
- Þjónustu við hestabú og hestamenn
- Samvinnu við dýralækna
- Kennslu eða leiðbeiningar í járningum
- Ráðgjöf um hófhirðu
Listinn er ekki tæmandi
Lögð er áhersla á að nemendur við HÍ á Hólum efli tengslanet sitt með því að hittast í staðlotum og finni eigin leiðir til að efla félagslíf deildarinnar. Hluti af félagslífi er að kynnast í staðlotum og skipuleggja viðburði tengt náminu.
Skólaárið 2026-2027 verður nýtt til að skilgreina og skipuleggja félagslíf stúdenta við HÍH meðal annars með því að stofna nemendafélög og skilgreina aðkomu stúdenta HÍH að Stúdentaráði. Nemendur HÍH munu fá stúdentakort og afslætti í samræmi við aðra stúdenta í háskólasamstæðunni.
Nemendur Háskóla Íslands eru dugleg að hittast á stúdentakjallaranum og eru nemendur HÍH hvött til að hittast þar ef tækifæri er til.
Námsvalshjólið
Á hverju hefur þú áhuga?
Veldu grunnnám
Skref fyrir skref
Þjónustuborð er staðsett í aðalbyggingu skólans á Hólum en nemendur geta einnig nýtt sér þjónustuborð HÍ á Háskólatorgi.