Byggingin Veröld
Staðsetning og opnunartími

Staðsetning
Brynjólfsgata 1
107 Reykjavík

Sýna á kortir

Almennur opnunartími
Mán-fös: 7:30 - 19:00
Lau: 7:30 - 17:00
Sun: Lokað

Upplýsingar

Um Veröld

Veröld – hús Vigdísar var formlega opnað sumardaginn fyrsta, 20. apríl 2017, að viðstöddu fjölmenni.

Húsið er helgað kennslu, rannsóknum og viðburðum sem tengjast erlendum tungumálum og menningu. Byggingin fékk nafnið Veröld – hús Vigdísar að undangenginni nafnasamkeppni meðal almennings.

Í húsinu er aðstaða fyrir fyrirlestra- og ráðstefnuhald, vinnuaðstaða fyrir erlenda gestafræðimenn og fyrir kennslu og rannsóknir í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands.

Þar er einnig Vigdísarstofa, þar sem hægt er að fræðast um sögulegt kjör Vigdísar Finnbogadóttur í embætti forseta Íslands þann 29. júní 1980 og sérstakt rými ætlað fyrir sýningar um tungumál og menningu.

Markmiðið með starfseminni í húsinu er því að auka þekkingu á erlendum tungumálum og menningu og mikilvægi þeirra og miðla henni sem víðast til leikra og lærðra.

Kort af byggingu

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil