Háskóli Íslands notar forritið Turnitin til varnar ritstuldi. Í Turnitin er hægt að hlaða inn skjali með texta, t.d. lokaverkefni nemanda. Forritið ber texta skjalsins saman við mikið safn heimilda. Niðurstaðan sýnir hvort rétt er farið með heimildir og tilvísanir í þær, eða hvort um er að ræða óeðlilega mikla samsvörun við verk annarra höfunda.
Leiðbeiningar um notkun forritsins má nálgast á eftirfarandi stöðum:
Undir liðnum Fræðasvið í Uglu má finna upplýsingar fyrir nemendur á síðum viðkomandi deilda. Þar eru ýmsar hagnýtar upplýsingar um lokaverkefni.