Viljir þú nýta aðgang Háskóla Íslands og Landsbókasafns – Háskólabókasafns að hinum ýmsu gagnasöfnum er hægt að setja upp svokallaða VPN-tengingu sem veitir þér aðgang þegar þú ert utan háskólasvæðisins.
Ekki er nauðsynlegt að setja upp VPN fyrir Snöru. Hægt er að skrá sig inn með háskólaaðgangi með því að smella á Meira → Innskráning → Innskrá með Microsoft.
Leiðbeiningar og frekari upplýsingar um uppsetningu VPN má finna á Þjónustumiðju Háskóla Íslands.