""
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækur eru á ensku eða öðrum erlendum málum (einkum Norðurlandamálum).
Lengd náms
Eitt ár - 60 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Getur þú hugsað þér að vinna á vettvangi þýðinga?
  • Vilt þú fá öðlast nákvæma þekkingu og skýran skilning á hugtökum, aðferðum og kenningum þýðingafræða?
  • Langar þig að læra að þekkja helstu aðferðir orðræðugreiningar og tengsl þeirra við þýðingar?

Hagnýtt nám í þýðingum er 60 eininga nám á framhaldsstigi sem er náskylt þýðingarfræði en þó með áherslu á nytjaþýðingar. Sé lagt stund á fullt nám er hægt að ljúka náminu á einu ári.

    Uppbygging náms 

    Námið er skipulagt í samráði við umsjónarmann en skiptist alla jafna í:  

    • 20 einingar í þýðingafræði
    • 20 einingum í íslensku
    • 20 einingar í erlendu máli

    Fyrirkomulag kennslu

    Kennsla fer fram á íslensku og ensku en flestar kennslubækur eru á ensku eða öðrum erlendum málum.

    Meginmarkmið

    Meðal annars er miðað að því að nemendur:

    • öðlist góð tök á notkun þýðingaminnis við þýðingar, þekkir fjölda upplýsingalinda á Netinu auk nauðsynlegra íðorðagrunna.
    • þekki helstu aðferðir sem notað má til að taka þýðingaákvarðanir og leiðbeina þeim sem þær nota.
    • kunni skil á helstu tegundum hugbúnaðar og rafrænna hjálpartækja sem notuð eru við þýðingar.

    Annað

    Hægt er að sækja um að fá námið metið sem fyrri hluta meistaranáms í þýðingarfræðum

    BA-próf með fyrstu einkunn, eða a.m.k. 5 ára starfsreynsla sem þýðandi. Allir nemendur þreyta inntökupróf.

    Ljúka þarf 60 einingum, þar af 20 einingum í sérstökum námskeiðum í þýðingafræði og 40 einingum í íslensku og erlendu máli, eftir stöðu og þörfum hvers nemanda. Nám í íslensku og erlendu máli er skipulagt í samráði við umsjónarmann þýðinganámsins.

    Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
    • Ferilskrá (CV)
    • Greinargerð um markmið með námi
    • Meðmælandi 1, nafn og netfang
    • Meðmælandi 2, nafn og netfang
    • Prófskírteini/námsyfirlit

    Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

    Uppsetning náms

    Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

    Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

    Óháð námsári | Haust
    Þýðingafræði (ÞÝÐ027F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Inngangsnámskeið í fræðunum þar sem farið verður yfir helstu kenningar tuttugustu aldar á þessu sviði. Nemendur lesa lykiltexta úr fræðunum (sem sumir eru nú til í íslenskri þýðingu), flytja erindi um einn höfundinn og verk hans, þýða einn slíkan fræðitexta og einn bókmenntatexta að eigin vali.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Óháð námsári | Haust
    Þýðingar og þýðingatækni (ÞÝÐ028F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið er helgað þeirri tækni og tólum sem þýðendur og aðrir tungumálasérfræðingar geta nýtt í störfum sínum. Nemendur kynnast tölvustuddum þýðingakerfum, gervigreind, þýðingaminnum og íðorðastjórnun og læra hvernig hægt er að samtvinna texta og búa til og vinna með þýðingaminni, orðasöfn og önnur máltæknigögn. Einnig verður fjallað um notkun orðabóka á netinu, gagnabanka og annarra hjálpargagna.

    Sérstök áhersla verður lögð á gagnrýna notkun tækninnar, mat á gæðum úttaks og atriði er varða trúnað, persónuvernd og meðferð gagna.

    Fjallað verður um starfsumhverfi þýðandans og áhrif tækniþróunar á þýðingastörf. Einnig verður farið yfir hagnýt atriði sem geta hjálpað sjálfstætt starfandi þýðendum að afla sér verkefna og fóta sig á vinnumarkaði og í gigg-hagkerfinu. Reynsla þeirra nemenda sem þegar hafa starfsreynslu verður nýtt í umræðum og verkefnavinnu.

    Námskeiðið er að stórum hluta verklegt. Nemendur vinna verkefni í tímum þar sem þeir fá þjálfun í notkun þeirra tækja og aðferða sem fjallað er um og undirbúa sig jafnframt fyrir heimaverkefni námskeiðsins.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Óháð námsári | Haust
    Að segja eða þegja? Hliðartextar í þýðingum. (ÞÝÐ705F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á þýðandi að segja frá þýðingarvinnu sinni? Á hann að vera sýnilegur í marktextanum eða frekar að halda sig til hlés þannig að ekki beri á að um þýðingu sé að ræða?

    Í málstofunni verður farið yfir helstu hliðartexta sem geta fylgt þýðingum, svo sem for- og eftirmála, neðanmáls- og aftanmálsgreinar, titla, tileinkanir, viðbætur af ýmsum toga en einnig þýðingadagbækur, viðtöl, greinaskrif o.fl. Rétt eins og hlutverk þýðandans hefur breyst í aldanna rás hafa vægi og hlutverk texta af þessum toga einnig breyst, sem og afstaða til þeirra.

    Í málstofunni ætlum við að kynnast orðræðu í kringum notkun hliðartexta við þýðingar, að fræðast um rannsóknir sem hafa verið gerðar á hliðartextum þýðenda en einnig að prófa okkur áfram með eigin þýðingar og notkun hliðartexta eða þýðingarýni.

    Nemendur flytja erindi í tíma, þýða texta að eigin vali eða semja ritgerð um fræðilegt efni eða þýðingarýni. Málstofan byggir á akademískri samvinnu nemenda og kennara þar sem virk þátttaka, gagnrýnin hugsun og opin skoðanaskipti eru í fyrirrúmi. Undir lok misseris er unnið saman í vinnumiðjum.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Óháð námsári | Haust
    Einstaklingsverkefni í þýðingafræði (ÞÝÐ601F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Einstaklingsverkefni í þýðingafræði í samráði við umsjónarkennara.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Óháð námsári | Haust
    Einstaklingsverkefni í þýðingafræði (ÞÝÐ602F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Einstaklingsverkefni í þýðingafræði í samráði við umsjónarkennara.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Óháð námsári | Vor
    Nýjar raddir í þýðingafræði (ÞÝÐ029F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    ATH.: Þetta námskeið er vanalega kennt á vormisseri en færist yfir á haustmisseri 2025 vegna rannsóknarleyfis kennara, það verður aftur á kennsluskrá á vormisseri 2027.

    Á undanförnum áratugum hefur ný orðræða haslað sér völl innan þýðingafræði. Félagsfræðileg og menningarfræðileg viðhorf skipta meira máli en áður. Athyglin beinist þannig að hlutverki þýðinga í hinum hnattvædda heimi, einkum í fjölmála samfélögum og jafnvel á átaka- og hættusvæðum. Starfsemi félaga- og andspyrnuhreyfinga fer oftar en ekki fram á sviði þýðinga. Feminísk þýðingafræði er sterk og blómstrandi grein fagsins.

    Rannsóknir beinast einnig að hlutverki þýðenda, starfsumhverfi þeirra og samstarfi við aðra aðila í þýðingarferlinu. Þannig eru t.d. hliðartextar rannsakaðir sem þýðendur semja eða gögn í einkaskjalasöfnum þeirra athuguð. Ekki má gleyma að ný þýðingartækni breytir starfi þýðenda en getur einnig haft mótandi áhrif á textagerð og þróun tungumála.

    Í málstofunni kynnast nemendur nýjum rannsóknum í þýðingafræði.

    Nemendur flytja erindi í tíma, þeir geta valið að skrifa fræðilega ritgerð, stunda þýðingarýni eða þýða texta að eigin vali. Málstofan er vettvangur akademískrar samvinnu nemenda og kennara þar sem virk þátttaka, gagnrýnin hugsun og opinská skoðanaskipti eru í fyrirrúmi.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Óháð námsári | Vor
    Nytjaþýðingar (ÞÝÐ803F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur æfa nytjaþýðingar á mismunandi nytjatextum. Nemendur þýða á móðurmál sitt undir leiðsögn kennara. Nemendur æfa sjálfstæð vinnubrögð og samvinnu við þýðingar. Farið verður yfir gagnleg hjálpartæki og vinnulag sem nýtist í störfum þýðenda. Áhersla er á hagnýt verkefni og umræður um áskoranir tengdar þýðingarvinnunni.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Óháð námsári | Vor
    Þýðingasaga (ÞÝÐ030F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað um sögu þýðinga, einkum á Vesturlöndum og svo á Íslandi. Farið verður yfir helstu hátinda þýðingasögunnar frá fornöld til nútíma. Litið verður á valda texta sem markað hafa þáttaskil í þýðingasögu eins og reyndar bókmennta- og mannkynssögunni (Cicero, Hóras, Hierónymus, Erasmus, Lúther, Oddur, Dolet o.fl.). Einkum verður litið til röksemda og verka þýðenda á sömu sviðum til samanburðar, t.d. biblíuþýðenda, ljóðaþýðenda o.s.frv. Nemendur taka fyrir einn fræðimann eða stefnu og halda erindi auk þess sem þýddur verður texti á því sviði. Einnig þýða nemendur bókmenntatexta frá því fyrir 1900. Námskeiðinu lýkur síðan með málstofu í þýðingarýni þar sem nemendur rýna í eina þýðingu að eigin vali.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Óháð námsári | Vor
    Einstaklingsverkefni í þýðingafræði (ÞÝÐ601F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Einstaklingsverkefni í þýðingafræði í samráði við umsjónarkennara.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Óháð námsári | Vor
    Einstaklingsverkefni í þýðingafræði (ÞÝÐ602F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Einstaklingsverkefni í þýðingafræði í samráði við umsjónarkennara.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Óháð námsári
    • Haust
    • ÞÝÐ027F
      Þýðingafræði
      Skyldunámskeið
      10
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Inngangsnámskeið í fræðunum þar sem farið verður yfir helstu kenningar tuttugustu aldar á þessu sviði. Nemendur lesa lykiltexta úr fræðunum (sem sumir eru nú til í íslenskri þýðingu), flytja erindi um einn höfundinn og verk hans, þýða einn slíkan fræðitexta og einn bókmenntatexta að eigin vali.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • ÞÝÐ028F
      Þýðingar og þýðingatækni
      Skyldunámskeið
      5
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Þetta námskeið er helgað þeirri tækni og tólum sem þýðendur og aðrir tungumálasérfræðingar geta nýtt í störfum sínum. Nemendur kynnast tölvustuddum þýðingakerfum, gervigreind, þýðingaminnum og íðorðastjórnun og læra hvernig hægt er að samtvinna texta og búa til og vinna með þýðingaminni, orðasöfn og önnur máltæknigögn. Einnig verður fjallað um notkun orðabóka á netinu, gagnabanka og annarra hjálpargagna.

      Sérstök áhersla verður lögð á gagnrýna notkun tækninnar, mat á gæðum úttaks og atriði er varða trúnað, persónuvernd og meðferð gagna.

      Fjallað verður um starfsumhverfi þýðandans og áhrif tækniþróunar á þýðingastörf. Einnig verður farið yfir hagnýt atriði sem geta hjálpað sjálfstætt starfandi þýðendum að afla sér verkefna og fóta sig á vinnumarkaði og í gigg-hagkerfinu. Reynsla þeirra nemenda sem þegar hafa starfsreynslu verður nýtt í umræðum og verkefnavinnu.

      Námskeiðið er að stórum hluta verklegt. Nemendur vinna verkefni í tímum þar sem þeir fá þjálfun í notkun þeirra tækja og aðferða sem fjallað er um og undirbúa sig jafnframt fyrir heimaverkefni námskeiðsins.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • ÞÝÐ705F
      Að segja eða þegja? Hliðartextar í þýðingum.
      Valnámskeið
      5
      Valnámskeið á námsleiðinni
      5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Á þýðandi að segja frá þýðingarvinnu sinni? Á hann að vera sýnilegur í marktextanum eða frekar að halda sig til hlés þannig að ekki beri á að um þýðingu sé að ræða?

      Í málstofunni verður farið yfir helstu hliðartexta sem geta fylgt þýðingum, svo sem for- og eftirmála, neðanmáls- og aftanmálsgreinar, titla, tileinkanir, viðbætur af ýmsum toga en einnig þýðingadagbækur, viðtöl, greinaskrif o.fl. Rétt eins og hlutverk þýðandans hefur breyst í aldanna rás hafa vægi og hlutverk texta af þessum toga einnig breyst, sem og afstaða til þeirra.

      Í málstofunni ætlum við að kynnast orðræðu í kringum notkun hliðartexta við þýðingar, að fræðast um rannsóknir sem hafa verið gerðar á hliðartextum þýðenda en einnig að prófa okkur áfram með eigin þýðingar og notkun hliðartexta eða þýðingarýni.

      Nemendur flytja erindi í tíma, þýða texta að eigin vali eða semja ritgerð um fræðilegt efni eða þýðingarýni. Málstofan byggir á akademískri samvinnu nemenda og kennara þar sem virk þátttaka, gagnrýnin hugsun og opin skoðanaskipti eru í fyrirrúmi. Undir lok misseris er unnið saman í vinnumiðjum.

      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • ÞÝÐ601F
      Einstaklingsverkefni í þýðingafræði
      Valnámskeið
      10
      Valnámskeið á námsleiðinni
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Einstaklingsverkefni í þýðingafræði í samráði við umsjónarkennara.

      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • ÞÝÐ602F

    • Vor
    • ÞÝÐ029F
      Nýjar raddir í þýðingafræði
      Skyldunámskeið
      5
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      ATH.: Þetta námskeið er vanalega kennt á vormisseri en færist yfir á haustmisseri 2025 vegna rannsóknarleyfis kennara, það verður aftur á kennsluskrá á vormisseri 2027.

      Á undanförnum áratugum hefur ný orðræða haslað sér völl innan þýðingafræði. Félagsfræðileg og menningarfræðileg viðhorf skipta meira máli en áður. Athyglin beinist þannig að hlutverki þýðinga í hinum hnattvædda heimi, einkum í fjölmála samfélögum og jafnvel á átaka- og hættusvæðum. Starfsemi félaga- og andspyrnuhreyfinga fer oftar en ekki fram á sviði þýðinga. Feminísk þýðingafræði er sterk og blómstrandi grein fagsins.

      Rannsóknir beinast einnig að hlutverki þýðenda, starfsumhverfi þeirra og samstarfi við aðra aðila í þýðingarferlinu. Þannig eru t.d. hliðartextar rannsakaðir sem þýðendur semja eða gögn í einkaskjalasöfnum þeirra athuguð. Ekki má gleyma að ný þýðingartækni breytir starfi þýðenda en getur einnig haft mótandi áhrif á textagerð og þróun tungumála.

      Í málstofunni kynnast nemendur nýjum rannsóknum í þýðingafræði.

      Nemendur flytja erindi í tíma, þeir geta valið að skrifa fræðilega ritgerð, stunda þýðingarýni eða þýða texta að eigin vali. Málstofan er vettvangur akademískrar samvinnu nemenda og kennara þar sem virk þátttaka, gagnrýnin hugsun og opinská skoðanaskipti eru í fyrirrúmi.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • ÞÝÐ803F
      Nytjaþýðingar
      Valnámskeið
      5
      Valnámskeið á námsleiðinni
      5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Nemendur æfa nytjaþýðingar á mismunandi nytjatextum. Nemendur þýða á móðurmál sitt undir leiðsögn kennara. Nemendur æfa sjálfstæð vinnubrögð og samvinnu við þýðingar. Farið verður yfir gagnleg hjálpartæki og vinnulag sem nýtist í störfum þýðenda. Áhersla er á hagnýt verkefni og umræður um áskoranir tengdar þýðingarvinnunni.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • ÞÝÐ030F
      Þýðingasaga
      Valnámskeið
      10
      Valnámskeið á námsleiðinni
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Fjallað um sögu þýðinga, einkum á Vesturlöndum og svo á Íslandi. Farið verður yfir helstu hátinda þýðingasögunnar frá fornöld til nútíma. Litið verður á valda texta sem markað hafa þáttaskil í þýðingasögu eins og reyndar bókmennta- og mannkynssögunni (Cicero, Hóras, Hierónymus, Erasmus, Lúther, Oddur, Dolet o.fl.). Einkum verður litið til röksemda og verka þýðenda á sömu sviðum til samanburðar, t.d. biblíuþýðenda, ljóðaþýðenda o.s.frv. Nemendur taka fyrir einn fræðimann eða stefnu og halda erindi auk þess sem þýddur verður texti á því sviði. Einnig þýða nemendur bókmenntatexta frá því fyrir 1900. Námskeiðinu lýkur síðan með málstofu í þýðingarýni þar sem nemendur rýna í eina þýðingu að eigin vali.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • ÞÝÐ601F
      Einstaklingsverkefni í þýðingafræði
      Valnámskeið
      10
      Valnámskeið á námsleiðinni
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Einstaklingsverkefni í þýðingafræði í samráði við umsjónarkennara.

      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • ÞÝÐ602F
      Einstaklingsverkefni í þýðingafræði
      Valnámskeið
      5
      Valnámskeið á námsleiðinni
      5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Einstaklingsverkefni í þýðingafræði í samráði við umsjónarkennara.

      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

    Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

    Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

    Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

    Frekari upplýsingar

    Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

    Möguleikar

    Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

    Skilyrði

    Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

    • 90 ECTS einingar í grunnnámi
    • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

    Sjá frekari skilyrði

    Námskeið metin til eininga

    Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

    Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

    Dæmi um starfsvettvang við þýðingar og túlkun:

    • á þýðingastofum
    • hjá ráðuneytum
    • hjá einkafyrirtækjum
    • í alþjóðasamskiptum
    • sem einyrkjar
    • sem fræðimenn

    Listinn er ekki tæmandi.

    Ekki er sérstakt nemendafélag fyrir þetta nám en nemendur eru duglegir að hittast í Stúdentakjallaranum.

    Umsagnir nemenda
    ""
    Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
    Gagnlegt efni
    Aurora Cooperation

    Námsvalshjólið

    Á hverju hefur þú áhuga?

    Aurora Cooperation

    Veldu framhaldsnám

    Skref fyrir skref

    Hafðu samband
    Hugvísindasvið
    Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
    Þjónusta og samfélagsmiðlar

    Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

    Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

    Aðalbygging Háskóla Íslands

    Deila

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil