Öll fræðasvið Háskóla Íslands standa að meistara- og doktorsnámi í umhverfis- og auðlindafræði en það eru:
- Verkfræði- og náttúruvísindasvið
- Menntavísindasvið
- Heilbrigðisvísindasvið
- Félagsvísindasvið
- Hugvísindasvið
Nemendahópurinn er alþjóðlegur og kennsla fer fram á ensku. Nemendur velja leiðbeinanda í meistaraverkefni úr hópi fastra akademískra starfsmanna. Heimadeild aðalleiðbeinanda segir til um frá hvaða deild nemandi brautskráist frá að námi loknu.
Rektor Háskóla Íslands skipar stjórn meistara- og doktorsnáms í umhverfis- og auðlindafræðum, sbr. 4. gr. reglna nr. 214/2011 um námið og í stjórninni eru fulltrúar frá öllum fræðasviðum HÍ. Stjórnin ber faglega ábyrgð á gæðum og samsetningu námsins.
Ekki er boðið upp á grunnnám í umhverfis- og auðlindafræði
Umhverfis- og auðlindafræði, MS, 120 einingar
- Sjálfbærni í rekstri
- Umhverfisvísindi og stjórnun umhverfismála
- Stjórnun náttúruauðlinda
- Hafið og sjálfbærni
- Sjálfbær landbúnaður og byggðaþróun
- Endurnýjanleg orka – orka og sjálfbærni: stefnumótun, orkuhagfræði og umhverfi
- Sjálfbærnigreind
- Umhverfis- og auðlindafræði
Vinsamlegast athugið að öll skyldunámskeið og flest valnámskeið eru kennd í staðnámi. Lotukennsla í sumum námskeiðum. Námið hentar því ekki alltaf nemendum sem þurfa að vinna í fullu starfi samhliða námi.
Námskeið í umhverfis- og auðlindafræði
Athugið! Nauðsynlegt er að skrá sig í nám áður en námskeið eru valin.
Rannsóknir