Meistarapróf í dönsku.
Doktorsnám í dönsku er þriggja ára rannsóknatengt framhaldsnám þar sem nemandinn vinnur sjálfstætt að eigin rannsóknarverkefni. Umfang rannsóknaverkefnis skal vera 180 e og það getur náð inn á ólík svið fræðanna: bókmenntir, málvísindi, þýðingar, menningarfræði. Nám til doktorsprófs lýtur reglum um meistara- og doktorsnám á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Inntökuskilyrði er rannsóknatengt MA-próf í dönsku með fyrstu einkunn eða, eftir atvikum, sambærilegt próf í annarri tengdri grein en umsækjandi þarf einnig að sýna fram á góðan almennan árangur úr fyrra háskólanámi. Umsækjandi skal hafa gott vald á dönsku (C1) og ensku (B1/B2).
Markmið doktorsnáms í dönsku er að veita doktorsnemum sem besta og víðtækasta vísindalega þjálfun og undirbúning undir vísindastörf á fræðasviði sínu, t.d. háskólakennslu eða sérfræðistörf. Nauðsynlegt er að þessi þjálfun taki mið af bakgrunni hvers nemanda og því fræðasviði sem hann vill sérhæfa sig á. Doktorspróf við Hugvísindasvið Háskóla Íslands veitir lærdómstitiilinn philosophiae doctor, Ph.D.
Jón Bragi Pálsson
Verkefnisstjóri.