MS-gráða í hagfræði eða skyldum greinum með góðum árangri.
Doktorsnám er 180 einingar hið minnsta og miðað við fullan námshraða tekur það 3 ár. Deild getur að fenginni tillögu doktorsnámsnefndar sett reglur um lágmarks námshraða. Standist nemandi ekki þær reglur getur rannsóknarnámsnefnd fellt niður skráningu nemandans í námið. Doktorsnám felst einkum í rannsókn sem lýkur með doktorsritgerð. Þó geta bæði doktorsnámsnefnd og leiðbeinandi saman eða hvort í sínu lagi gert kröfu um að nemandi í doktorsnámi ljúki einnig námskeiðum. Leiðbeinandi nemanda gerir þá tillögu að áætlun fyrir þennan hluta námsins og leggur fyrir doktorsnámsnefnd. Hluti námskeiðanna getur verið lesnámskeið og skal þá doktorsnámsnefnd tilnefna umsjónarmann eða menn með hverju námskeiði. Umsjónarmenn ákveða kröfur í viðkomandi námskeiðum og skera úr um hvort nemandi hafi staðist þær.
Kolbrún Eggertsdóttir,
Gæðastjóri
Sigrún Daníelsdóttir Flóvenz
Verkefnisstjóri