""
Tungumál kennslu
Spænska
Lengd náms
Eitt ár - 60 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á spænsku tungumáli?
  • Hefur þú gaman af spænskum bókmenntum og menningu?
  • Býrð þú yfir góðri færni í spænskri ritun og talmáli?
  • Viltu fjölbreytt úrval námskeiða sem eru á þínu áhugasviði?
  • Langar þig að hafa val um fjölbreyttan starfsvettvang?
  • Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?

Í diplómanámi í spænsku færðu undirstöðuþekkingu á máli og menningu þeirra landa sem hafa spænsku að þjóðtungu.

Þú kynnist menningu Spánar og Rómönsku Ameríku: Bókmenntum, kvikmyndum, þjóðlífi og hugmyndasögu.

Þú færð þjálfun í rit- og talmáli á fyrstu námsstigum og áhersla er lögð á fræðileg og sjálfstæð vinnubrögð. Einnig færðu innsýn í heim þýðinga og kynnist sögu og þróun tungumálsins.

Gert er ráð fyrir að nemandi sem vill halda áfram námi í spænsku við Háskóla Íslands geti það og fengið námskeið úr diplómanámi sínu metin inn í BA-nám.

Meðal viðfangsefna

  • Tal- og ritþjálfun
  • Spænsk málfræði
  • Menning, þjóðlíf og saga Spánar
  • Talþjálfun

Annað 

Boðið er upp á spænsku sem:

Meira um Aðal- og aukagreinar undir Hjálplegt efni neðst á síðunni.

Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf frá erlendum skóla.

Gert er ráð fyrir að nemendur geti sýnt fram á A2 færni í tungumálinu samkvæmt samevrópska tungumálarammanum.

Til þess að ljúka diplómanámi í spænsku þarf nemandi að ljúka öllum námskeiðunum sem tilgreind eru á námsleiðinni:

- SPÆ102G Talþjálfun I
- SPÆ105G Spænsk málfræði I
- SPÆ107G Menning, þjóðlíf og saga Spánar
- SPÆ110G Ritþjálfun I,
- SPÆ104G Spænska í ferðaþjónustu og viðskiptum
- SPÆ201G Ritþjálfun II
- SPÆ204G Spænsk málfræði II
- SPÆ205G Menning, þjóðlíf og saga Rómönsku Ameríku
- SPÆ267G Talþjálfun II: Fjölmiðlar og hversdagsmenning

Nemandi velur auk þess 4 einingar úr námskeiðum sem eru í boði í BA-námi í spænsku í samráði við greinarformann.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Óháð námsári | Haust
Talþjálfun I (SPÆ102G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Unnið er með færni í samskiptum og munnlegri tjáningu. Einnig er unnið með tileinkun orðaforða, málfræðiatriða og samskiptamáta. Einnig eru tekin fyrir atriði sem tengjast félagslegum og menningarlegum þáttum tungumálsins. Námsefnið sem er notað eru fréttir líðandi stundar, stuttmyndir, bókmenntatextar og aðrir menningalegir textar markmálsins.

Kennslutungumál: Spænska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Óháð námsári | Haust
Spænsk málfræði I (SPÆ105G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður farið í ýmis grundvallaratriði spænskrar málfræði á (getu)stigi A2+ (CEFR/ MCER. Sjá https://europa.eu/europass/is/common-european-framework-reference), m.a., sagnir í nútíð og þátíð, fornöfn og samtengingar. Kennslan skiptist í fyrirlestra og æfingatíma.

Kennslutungumál: Spænska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Menning, þjóðlíf og saga Spánar (SPÆ107G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um samfélag, menningu og þjóðlíf Spánar. Einnig verður stiklað á stóru um sögu lands og þjóðar.

Æskilegt er að nemandi taki námskeiðið MOM101G samhliða þessu námskeiði.

Kennslutungumál: Spænska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Ritþjálfun I (SPÆ110G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur fá þjálfun í uppbyggingu og ritun skemmri og lengri texta á spænsku. Þeir fá þjálfun í notkun orðabóka og leiðsögn í réttritun á spænsku. Einnig verður fjallað um reglur þær sem gilda um tilvitnanir og heimildanotkun. Unnið er með ólíka gerðir texta, hlustun og endursögn og myndrænt efni. 

Kennslutungumál: Spænska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Haust
Sjálfsnám í spænsku I (fjarnám) (SPÆ003G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Sjálfsnám í spænsku I er nemendastýrt fjarnám fyrir þá sem hafa náð færni sem samsvarar A2 eða meira skv. Evrópska tungumálarammanum.

Nemendur stjórna að hluta til helstu þáttum námsins svo sem markmiðum, aðferðum og efnisvali. Námið fer fram í nánu samstarfi við umsjónarkennara sem nemendur hitta í sérstökum viðtölum 3 sinnum á kennslutímabilinu. Auk þess taka nemendur þátt í vinnustofum til að þjálfa talmál og ritun. Námsmat tekur tillit til allra færniþátta: ritun, lestur, talmál og hlustun.

Kennslutungumál: Spænska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Spænska í ferðaþjónustu og viðskiptum (SPÆ104G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu skipuleggja nemendur ferðir á spænsku til ýmissa landa, t.d. Íslands, Spánar, Perú og Mexíkó, og móttöku ferðamanna í þessum löndum ásamt skipulagningu styttri og lengri ferða (skoðunarferðir, menningatengdar ferðir, afþreyingaferðir, m.m.). Einnig verður farið í ýmislegt sem lýtur að viðskiptum og  menningarlæsi í viðskiptum.

Sérstök áhersla verður lögð á orðaforða sem viðkemur ferðaþjónustu og viðskiptum.

Kennslutungumál: Spænska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Ritþjálfun II (SPÆ201G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður farið yfir helstu stafsetningarreglur spænskrar tungu, greinarmerkjasetningu, áherslureglur og réttritun, m.m.

Kennslan skiptist í fyrirlestra og æfingatíma.

Kennslutungumál: Spænska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Spænsk málfræði II (SPÆ204G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður haldið áfram þar sem frá var horfið í Spænskri málfræði I. Meðal annars verður fjallað um sagnir, viðtengingarháttinn og aukasetningar.

Kennslutungumál: Spænska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Menning, þjóðlíf og saga Rómönsku Ameríku (SPÆ205G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Inngangsnámskeið í menningarsögu spænskumælandi þjóða í Rómönsku-Ameríku. Farið er stuttlega yfir sögu álfunnar allt frá tímum frumbyggja til nútímans með hliðsjón af þjóðlífi, menningu og samfélagslegri uppbyggingu. Einnig eru tekin til umfjöllunar eftirfarandi efni: trúarbrögð, tónlist, hátíðir, staða kvenna og fjölskylduuppbygging, málefni indíána og blökkumanna, m.m.

Kennslutungumál: Spænska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Talþjálfun II: Fjölmiðlar og hversdagsmenning (SPÆ267G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Unnið er með færni í samskiptum og munnlegri tjáningu. Einnig er unnið með tileinkun orðaforða, málfræðiatriði s.s. samtengingar og orðasambönd til að binda saman texta eða tal. Einnig eru tekin fyrir atriði sem tengjast félagslegum og menningarlegum þáttum tungumálsins.

Námsefnið sem er notað eru fréttir líðandi stundar, stuttmyndir, bókmenntatextar og aðrir menningalegir textar markmálsins. Námskeiðið byggist einnig á samstarfsverkefni á netinu með Háskólanum í Barcelona. Íslensku nemendurnir æfa talað mál í ýmiss konar verkefnum sem þeir deila með nemendum á Spáni.

Kennslutungumál: Spænska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Óháð námsári | Vor
Sjálfsnám í spænsku II (SPÆ004G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Sjálfsnám í spænsku II er nemendastýrt fjarnám fyrir þá sem hafa náð færni sem samsvarar A2 eða meira skv. Evrópska tungumálarammanum.

Nemendur stjórna að hluta til helstu þáttum námsins svo sem markmiðum, aðferðum og efnisvali. Um er að ræða framhaldsnámskeið fyrir þá nemendur sem hafa lokið Sjálfsnámi í spænsku I. Það námskeið er þó ekki nauðsynlegur undirbúningur og nýir nemendur geta skráð sig í þetta námskeið að uppfylltum forkröfum. Sjálfsnám fer fram í nánu samstarfi við umsjónarkennara sem nemendur hitta í sérstökum viðtölum 3 sinnum á misseri. Auk þess taka nemendur þátt í vinnustofum til að þjálfa talmál og ritun. Námsmat tekur tillit til allra færniþátta: ritun, lestur, talmál og hlustun.

Kennslutungumál: Spænska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Sérverkefni í spænsku (SPÆ208G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Sérverkefni í samráði við greinarformann.

Kennslutungumál: Spænska
Óháð námsári
  • Haust
  • SPÆ102G
    Talþjálfun I
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Unnið er með færni í samskiptum og munnlegri tjáningu. Einnig er unnið með tileinkun orðaforða, málfræðiatriða og samskiptamáta. Einnig eru tekin fyrir atriði sem tengjast félagslegum og menningarlegum þáttum tungumálsins. Námsefnið sem er notað eru fréttir líðandi stundar, stuttmyndir, bókmenntatextar og aðrir menningalegir textar markmálsins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • SPÆ105G
    Spænsk málfræði I
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður farið í ýmis grundvallaratriði spænskrar málfræði á (getu)stigi A2+ (CEFR/ MCER. Sjá https://europa.eu/europass/is/common-european-framework-reference), m.a., sagnir í nútíð og þátíð, fornöfn og samtengingar. Kennslan skiptist í fyrirlestra og æfingatíma.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SPÆ107G
    Menning, þjóðlíf og saga Spánar
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um samfélag, menningu og þjóðlíf Spánar. Einnig verður stiklað á stóru um sögu lands og þjóðar.

    Æskilegt er að nemandi taki námskeiðið MOM101G samhliða þessu námskeiði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SPÆ110G
    Ritþjálfun I
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur fá þjálfun í uppbyggingu og ritun skemmri og lengri texta á spænsku. Þeir fá þjálfun í notkun orðabóka og leiðsögn í réttritun á spænsku. Einnig verður fjallað um reglur þær sem gilda um tilvitnanir og heimildanotkun. Unnið er með ólíka gerðir texta, hlustun og endursögn og myndrænt efni. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SPÆ003G
    Sjálfsnám í spænsku I (fjarnám)
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Sjálfsnám í spænsku I er nemendastýrt fjarnám fyrir þá sem hafa náð færni sem samsvarar A2 eða meira skv. Evrópska tungumálarammanum.

    Nemendur stjórna að hluta til helstu þáttum námsins svo sem markmiðum, aðferðum og efnisvali. Námið fer fram í nánu samstarfi við umsjónarkennara sem nemendur hitta í sérstökum viðtölum 3 sinnum á kennslutímabilinu. Auk þess taka nemendur þátt í vinnustofum til að þjálfa talmál og ritun. Námsmat tekur tillit til allra færniþátta: ritun, lestur, talmál og hlustun.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • SPÆ104G
    Spænska í ferðaþjónustu og viðskiptum
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu skipuleggja nemendur ferðir á spænsku til ýmissa landa, t.d. Íslands, Spánar, Perú og Mexíkó, og móttöku ferðamanna í þessum löndum ásamt skipulagningu styttri og lengri ferða (skoðunarferðir, menningatengdar ferðir, afþreyingaferðir, m.m.). Einnig verður farið í ýmislegt sem lýtur að viðskiptum og  menningarlæsi í viðskiptum.

    Sérstök áhersla verður lögð á orðaforða sem viðkemur ferðaþjónustu og viðskiptum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SPÆ201G
    Ritþjálfun II
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður farið yfir helstu stafsetningarreglur spænskrar tungu, greinarmerkjasetningu, áherslureglur og réttritun, m.m.

    Kennslan skiptist í fyrirlestra og æfingatíma.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SPÆ204G
    Spænsk málfræði II
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður haldið áfram þar sem frá var horfið í Spænskri málfræði I. Meðal annars verður fjallað um sagnir, viðtengingarháttinn og aukasetningar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SPÆ205G
    Menning, þjóðlíf og saga Rómönsku Ameríku
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Inngangsnámskeið í menningarsögu spænskumælandi þjóða í Rómönsku-Ameríku. Farið er stuttlega yfir sögu álfunnar allt frá tímum frumbyggja til nútímans með hliðsjón af þjóðlífi, menningu og samfélagslegri uppbyggingu. Einnig eru tekin til umfjöllunar eftirfarandi efni: trúarbrögð, tónlist, hátíðir, staða kvenna og fjölskylduuppbygging, málefni indíána og blökkumanna, m.m.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SPÆ267G
    Talþjálfun II: Fjölmiðlar og hversdagsmenning
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Unnið er með færni í samskiptum og munnlegri tjáningu. Einnig er unnið með tileinkun orðaforða, málfræðiatriði s.s. samtengingar og orðasambönd til að binda saman texta eða tal. Einnig eru tekin fyrir atriði sem tengjast félagslegum og menningarlegum þáttum tungumálsins.

    Námsefnið sem er notað eru fréttir líðandi stundar, stuttmyndir, bókmenntatextar og aðrir menningalegir textar markmálsins. Námskeiðið byggist einnig á samstarfsverkefni á netinu með Háskólanum í Barcelona. Íslensku nemendurnir æfa talað mál í ýmiss konar verkefnum sem þeir deila með nemendum á Spáni.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • SPÆ004G
    Sjálfsnám í spænsku II
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Sjálfsnám í spænsku II er nemendastýrt fjarnám fyrir þá sem hafa náð færni sem samsvarar A2 eða meira skv. Evrópska tungumálarammanum.

    Nemendur stjórna að hluta til helstu þáttum námsins svo sem markmiðum, aðferðum og efnisvali. Um er að ræða framhaldsnámskeið fyrir þá nemendur sem hafa lokið Sjálfsnámi í spænsku I. Það námskeið er þó ekki nauðsynlegur undirbúningur og nýir nemendur geta skráð sig í þetta námskeið að uppfylltum forkröfum. Sjálfsnám fer fram í nánu samstarfi við umsjónarkennara sem nemendur hitta í sérstökum viðtölum 3 sinnum á misseri. Auk þess taka nemendur þátt í vinnustofum til að þjálfa talmál og ritun. Námsmat tekur tillit til allra færniþátta: ritun, lestur, talmál og hlustun.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SPÆ208G
    Sérverkefni í spænsku
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Sérverkefni í samráði við greinarformann.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Góð tungumálakunnátta nýtist á margvíslegan hátt og í nútímaþjóðfélagi er færni í tungumálum afar eftirsóknarverð.

BA-próf í spænsku getur verið lykill að spennandi framtíðarstarfi, meðal annars vegna þess hversu auðvelt er að samþætta það öðru námi þar sem tungumálakunnátta skiptir sköpum.

Nám í spænsku getur auk þess verið undirstaða fyrir nám eða framhaldsnám í öðrum greinum í spænskumælandi löndum.

Fólk með próf í spænsku starfar meðal annars við:

  • Fjölmiðlun
  • Ferðaþjónusta
  • Alþjóðasamskipti
  • Stjórnmál
  • Viðskipti
  • Þýðingar
  • Fræðastörf
  • Kennslu

Listinn er ekki tæmandi.

  • Linguae er félag tungumálanema við Háskóla Íslands.
  • Markmið félagsins er að efla félagslíf nemenda innan Mála- og menningardeildar.
  • Enn sem komið er samanstendur það af ítölsku-, frönsku-, þýsku-, spænsku-, dönsku-, kínversku- og rússneskunemum.
  • Nemendafélagið heldur úti Facebook-síðu.

Meira um félagslíf stúdenta í Hí.

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Álfgrími Aðalsteinssyni
Ég fór í lýðháskóla í Danmörku þegar ég var 17 ára og þegar ég útskrifaðist úr MH flutti ég til Granada í Andalúsíu á Spáni. Ég var þar í eina önn í spænskuskóla en núna er ég fluttur aftur heim til Íslands og er í Spænsku BA. Mér finnst það mjög skemmtilegt enda elska ég það tungumál og finnst námið mjög áhugavert og skiptinámið spennandi!
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil