Kennsla
Almennur umsóknarfrestur
Tekið er við umsóknum um nám tvisvar á ári, að vori og hausti.

Ef síðasta umsóknardag umsóknartímabils ber upp á helgi er opið fyrir umsóknir til og með fyrsta virka dags eftir þann dag.

Grunnnám

  • Móttaka umsókna hefst á Háskóladaginn, sem haldinn er árlega í lok febrúar eða byrjun mars.
  • Móttöku umsókna lýkur 5. júní.
  • Fylgigögnum þarf að skila í síðasta lagi 12. júní.
  • Umsóknarfrestur fyrir erlenda umsækjendur, aðra en skiptinema, er til 1. febrúar ár hvert.

Undantekning

Umsóknarfresti neðagreindra námsleiða lýkur 20. maí:

Athugið að erlendir umsækjendur sem eru búsettir á Íslandi og hafa íslenska kennitölu geta sótt um ofangreindar þrjár námsleiðir í íslensku til 20. maí. Aðrir erlendir umsækjendur sem eru búsettir á Íslandi og hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi erlendis þurfa að sækja um nám fyrir 1. febrúar.

  • Móttaka umsókna hefst 15. september
  • Móttöku umsókna lýkur 30. nóvember
  • Fylgigögnum þarf að skila í síðasta lagi 8. desember.

Ekki er tekið inn í nám við öll fræðasvið á þessu tímabili. Aðeins takmarkaður hluti námsleiða er þá í boði. Viðkomandi námsleiðir koma fram á rafrænu umsóknareyðublaði og á yfirliti um námsleiðir í boði.

Ekki eru veittar undanþágur frá formlegum inntökuskilyrðum þegar sótt er um nám sem hefst á vormisseri.

Umsóknarfrestur um grunnnám fyrir erlenda nemendur (aðra en skiptinema) er til 1. febrúar ár hvert. Ríkisborgarar hinna norrænu ríkjanna geta þó sótt um grunnnám til 5. júní.

Nánari upplýsingar um hvað hafa þarf í huga varðandi nám við HÍ og komu til Íslands er að finna á síðu á ensku fyrir nýnema. Tengill á rafrænt umsóknareyðublað er á síðunni Preparing your application á umsóknartíma.

Á námsleiðunum Íslenska sem annað mál, öllum námsstigum og Íslenskustoð er umsóknarfrestur ríkisborgara frá norðurlönum og erlendra nemenda sem búsettir eru á Íslandi og hafa íslenska kennitölu 20. maí.

Framhaldsnám

Umsóknir um meistaranám eru ekki afgreiddar ef umbeðin fylgigögn vantar.

  • Móttaka umsókna hefst á Háskóladaginn, sem haldinn er árlega í lok febrúar eða byrjun mars.
  • Móttöku lýkur 15. apríl.
  • Fylgigögnum þarf að skila í síðasta lagi 22. apríl.

Undantekningar

  • Móttaka umsókna hefst 15. september.
  • Móttöku umsókna lýkur 15. október.
  • Fylgigögnum þarf að skila í síðasta lagi 22. október.

Ekki er tekið inn í nám við öll fræðasvið á þessu tímabili. Aðeins takmarkaður hluti námsleiða er þá í boði.

Viðkomandi námsleiðir koma fram á rafrænu umsóknareyðublaði og á yfirliti um námsleiðir sem hægt er að sækja um.

Undantekning

Umsóknir í örnám og tilteknar leiðir viðbótarprófs á meistarastigi (áður diplómanám) eru til 30. nóvember.

Umsóknarfrestur um framhaldsnám fyrir erlenda nemendur (aðra en skiptinema) er til 1. febrúar ár hvert. Ríkisborgarar hinna norrænu ríkjanna geta þó sótt um framhaldsnám til 15. apríl.

Nánari upplýsingar um hvað hafa þarf í huga varðandi nám við HÍ og komu til Íslands er að finna á síðu á ensku fyrir nýnema. Tengill á rafrænt umsóknareyðublað er á síðunni Preparing your application á umsóknartíma.

Á námsleiðunum Íslenska sem annað mál, öllum námsstigum og Íslenskustoð er umsóknarfrestur ríkisborgara frá norðurlönum og erlendra nemenda sem búsettir eru á Íslandi og hafa íslenska kennitölu 20. maí.

Doktorsnám
Umsóknarferlið
Mikilvægt er að kynna sér vel upplýsingar um umsóknarferlið
nemendur háskólatorg

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil