læknisfræði
ECTS-einingar

Fullt nám í eitt kennsluár er metið til 60 eininga í Háskóla Íslands, 30 einingar á hvoru misseri. Einingar við HÍ eru jafngildar ECTS-einingum (European Credit Transfer and Accumulation System).

Almennt er miðað við að nám í eitt háskólaár sé 1.500 til 1.800 vinnustundir. Það gera 25 til 30 vinnustundir fyrir hverja ECTS-einingu.

Námskeiðum eru gefnar einingar í hlutfalli við innbyrðis vægi þeirra og samtala eininga allra námskeiða á sama kennsluári er 60, eða 30 á hvoru misseri. Skipting eininga á milli missera getur í einstökum tilvikum verið til dæmis 28/32 í stað 30/30. Stúdent er þó heimilt að skrá sig í allt að 40 ECTS-einingar á misseri.

Nánari upplýsingar um einingamat og ECTS einingar eru í Kennsluskrá.

Meira um einingar og einingamat

Nám til BA-, B.Ed.- og BS-prófa er 180 ECTS-einingar (3 ár) í flestum tilvikum. BS-próf í hjúkrunarfræði er 240 einingar (4 ár).

Ef þú vilt skrá þig í 120 eininga aðalgrein þarftu líka að skrá þig í 60 eininga aukagrein til að ljúka 180 eininga bakkalárgráðu.

Sjá nánar um aðal- og aukagreinar í grunnnámi.

Í flestum tilfellum eru námsleiðir í meistaranámi 120 einingar. (2 ár).

Fjöldi eininga í diplóma-, viðbótar- og örnámi er mismunandi. Flestar námsleiðir eru 30-60 einingar.

Einstökum deildum er heimilt að meta námskeið eða námshluta sem þú hefur lokið við aðra deild eða annan skóla.

Þú sækir um mat á fyrra námi til þinnar deildar, sem ákveður hvort meta skuli viðkomandi námsleið og þá til hve margra ECTS-eininga.

Nánari upplýsingar um mat á fyrra námi.

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil