Tungumál kennslu
Kennsla fer oftast fram á íslensku. Lesefni er oftast á ensku. Æskilegt er að ritgerð sé á ensku.
Lengd náms
Fjögur ár - 210 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Umsækjandi skal hafa lokið meistaragráðu, eða sambærilegu prófi, frá viðurkenndum háskóla. Að jafnaði skal umsækjandi hafa lokið meistararitgerð sem nemur 30 ECTS-einingum. Við mat á umsókn skal tekið mið af námsárangri og starfsreynslu umsækjanda.
Doktorsnám við Menntavísindasvið byggist á framhaldsnámskeiðum í aðferðafræði, öðrum námskeiðum á fræðasviði nemandans, virkri þátttöku í fræðasamfélaginu innanlands og á alþjóðavettvangi, auk vinnu við doktorsverkefni.
Námskeiðaskylda nemenda er 30 ECTS einingar og er skipulag námsins að jafnaði sveigjanlegt. Jafnframt vinna nemendur að áætlanagerð, rannsóknum og ritgerðarsmíð undir leiðsögn leiðsagnarnefndar. Doktorsritgerð nemur 180 ECTS einingum.
Kennsluskrifstofa
Virka daga 9:00 - 15:00
Verkefnisstjóri
Gyða Fanney Guðjónsdóttir