Til að innritast í doktorsnám í Hjúkruna- og ljósmóðurfræðideild þarf nemandi að hafa lokið MS prófi í hjúkrunarfræði eða MS eða kandídatsprófi í ljósmóðurfræði eða öðru prófi sem rannsóknanámsnefnd metur að sé samsvarandi.
Doktorsnám í Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild er 180/240 einingar. Doktorsritgerð við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild skal metin til 180/240 eininga en taka má námskeið til allt að 30 eininga.
Samhliða vinnu við doktorsritgerðina skal doktorsnemi stunda nám eftir því sem gert er ráð fyrir í náms- og rannsóknaráætlun hans. Verk til doktorsprófs getur verið hvort sem er í formi heildstæðrar ritgerðar eða safns greina sem hafa birst eða verið sendar til birtingar í ritrýndum alþjóðlegum tímaritum. Með greinasafni skal ávallt fylgja ítarleg samantekt á verkinu og yfirlit yfir þekkingu á þeim fræðasviðum sem verkið tekur til.
Til doktorsritgerða eru gerðar kröfur um vísindaleg vinnubrögð og sjálfstætt framlag til þekkingarsköpunar á fræðasviðinu.
Guðjón Ingi Guðjónsson
Kennslustjóri