Háskóli Íslands hefur verið undirstaða atvinnulífs og framfara í meira en 110 ár. Hann er stærsti háskóli landsins með langmesta fjölbreytni í námsframboði enda býður hann á fjórða hundrað spennandi námsleiðir á öllum fræðasviðum. Námið við skólann stenst alþjóðlegar gæðakröfur og opnar þannig dyr að framhaldsnámi og störfum víða um heim.
Fjölbreytni í stað- og fjarnámi
Háskóli Íslands býður upp á mjög fjölbreytt nám á grunn- og framhaldsstigi. Háskólinn býður einnig upp á ýmiss konar fag- og starfsnám. Nám við skólann býr nemendur ekki bara undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi heldur líka að hafa þar áhrif. HÍ menntar fólk fyrir nær öll svið samfélagsins og íslensks atvinnulífs.
HÍ býður fjölda námsleiða og námskeiða í stað- og eða fjarnámi og vinnur stöðugt að því að fjölga fjarnámsleiðum með gæði að leiðarljósi. Hvort sem stefnan er að stunda nám í heimabyggð eða með vinnu, þá er til staðar fjölbreytt fjarnám með öflugum stuðningi og þjónustu. HÍ býður líka öfluga þjónustu náms- og starfsráðgjafa sem geta stutt faglega við val á námi, meðal annars eftir áhugasviðum og færni.
Öflug sí- og endurmenntun
Háskóli Íslands starfrækir víðtæka sí- og endurmenntun til að stuðla að betra samfélagi með því að efla þekkingu og hæfni einstaklinga. Með starfi sínu á þessu sviði leiðir HÍ saman fólk með ólíkan bakgrunn og skapar því ný tækifæri með nýrri þekkingu.
Endurmenntun HÍ er í fararbroddi í endur- og símenntun á Íslandi og tengir saman háskóla, atvinnulíf, samfélag og einstaklinga. Markmiðið Endurmenntunar HÍ er að þróa fjölbreytt nám til að efla hæfni og þekkingu einstaklinga í lífi og starfi.