Forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs er ráðinn af rektor að fenginni tillögu valnefndar. Hann er æðsti yfirmaður og akademískur leiðtogi fræðasviðsins, og stjórnar daglegri starfsemi þess. Með forseta fræðasviðs starfar öflugt teymi stjórnenda og sérfræðinga.
Forseti fræðasviðs ber m.a. ábyrgð á:
- Útfærslu stefnu Háskóla Íslands á vettvangi fræðasviðs
- Öflugri liðsheild og faglegu samstarfi
- Tengslum við innlenda og erlenda samstarfsaðila, fjármálum og rekstri fræðasviðs og stofnana sem undir það heyra
- Starfsmannamálum
- Gæðum kennslu, rannsókna og þjónustu
- Stjórnsýslu og stoðþjónustu fræðasviðsins
Forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs
Sigurður M Garðarsson
Tel: +354 525 4659
Email: sigmg@hi.is