""
Algengar spurningar um inntökuprófið

Inntökupróf er í læknisfræði, sjúkraþjálfunarfræði og tannlæknisfræði.

Undirbúningur

Inntökuprófið verður haldið dagana 11. og 12. júní 2026.

Inntökuprófið verður haldið á tveimur stöðum:

  • Í Háskóla Íslands
  • í Háskólanum á Akureyri

Umsækjendur velja prófstað í rafrænu umsókninni.

  • 75 í læknisfræði
  • 35 í sjúkraþjálfunarfræði
  • 40 í tannlæknisfræði

Senda þarf inn almenna umsókn í grunnnám í læknisfræði, sjúkraþjálfunarfræði eða tannlæknisfræði í gegnum umsóknargátt HÍ fyrir 20. maí til að vera skráður í inntökuprófið.

Einnig þarf að skila inn staðfestu afriti af Stúdentsprófi til Nemendaskrár fyrir sama tíma. Sjá síðuna Umsóknir frekari upplýsingar.

Þrjár mikilvægustu dagsetningarnar eru:

  • skráningarfresturinn og skiladagur fylgigagna sem er 20. maí ár hvert
  • gjalddagi/eindagi skráningargjaldsins
  • prófdagarnir sjálfir

Sjá nánar: Mikilvægar dagsetningar fyrir inntökuprófið

Ekki eru veittar undanþágur frá birtum dagsetningum. Þeir sem sækja ekki um eða greiða ekki fyrir settan tíma fá ekki að þreyta prófið.

Þá þarftu að taka fram hvaða próf það er og frá hvaða skóla í umsóknarferlinu, sem og skila inn staðfestu afriti af því prófi til Nemendaskrár HÍ áður en umsóknafresturinn rennur út.

Sjá upplýsingar um fylgigögn með umsókn.

Sjá einnig ENIC/NARIC sem sér um að meta erlend próf.

Læknadeild hefur sérstaklega haft í huga að sem flestir stúdentar af náttúrufræði-, mála- og félagsfræðibrautum geti undirbúið sig fyrir inntökuprófið.

Náttúrufræðibraut veitir þó besta grunninn vegna þess að það námsefni sem stór hluti prófsins tekur mið af er í kjarna hennar en almennar raungreinar eru ríkjandi þáttur í prófinu.

Það er undir þekkingarlegri stöðu þinni komið hvaða viðbótarnám myndi gagnast þér.

Þeim sem hafa góða undirstöðu úr framhaldsskóla myndi þó sennilega gagnast best að bæta við sig háskólanámi. Hvaða nám viðkomandi ætti að velja með töku inntökuprófsins í huga, er komið undir því hvar hann er veikastur fyrir þekkingarlega séð.

Læknadeild valdi í samstarfi við Félag íslenskra framhaldsskóla í upphafi (2003) þá áfanga sem inntökuprófið grundvallaðist á og var það í samræmi við aðalnámskrána sem þá var í gildi. Því er áfram mælt með eftirfarandi áföngum til undibúnings fyrir prófið:

  • Eðlisfræði: EÐL 103, 203
  • Efnafræði: EFN 103, 203, 303, 313
  • Enska: ENS 103, 203, 303, 403
  • Félagsfræði: FÉL 103
  • Íslenska: ÍSL 102, 202, 212, 303, 403, 503
  • Náttúruvísindi: NÁT 103, 113, 123
  • Líffræði: LÍF 103, 203
  • Saga: SAG 103, 203
  • Stærðfræði: STÆ 103, 203, 303, 403, 503
  • Tölfræði: STÆ 313
  • Sálfræði: 103

Ný aðalnámskrá framhaldskóla tók gildi í öllum framhaldsskólum frá og með árinu 2015. Læknadeild mælir með því að nemendur búi yfir þekkingu, leikni og hæfni sem einkennir hæfniþrep 2-3 fyrir eftirfarandi námsgreinar:

  • íslensku
  • ensku
  • stærðfræði
  • líffræði
  • efnafræði

Auk þekkingar, leikni og hæfni sem einkennir hæfniþrep 1-2 í eftirfarandi námsgreinum:

  • eðlisfræði
  • náttúruvísindum
  • félagsfræði
  • sögu
  • sálfræði

Það verða ekki gefnir út neinir bókalistar fyrir prófið, einungis bent á þau áherslu- og efnisatriði sem koma fram í Aðalnámskrá framhaldsskóla.

Þetta er nýnæmi fyrir flesta nemendur framhaldsskóla en í samræmi við þau vinnubrögð sem tíðkast í háskóla þar sem áhersluatriði í náminu eru fyrst og fremst gefin upp, en nemendur verða síðan sjálfir að afla sér þekkingar um efnið. Á prófum er síðan kannað hvort menn hafi tileinkað sér efnið og geti notað það.

Það er ekki útilokað að á prófinu verði einstaka spurningar sem tengjast Njálu eða svipuðum bókmenntum.

Engin undirbúningsnámskeið hafa verið haldin á vegum Læknadeildar né Tannlæknadeildar. Það hefur þó í gegnum tíðina verið boðið upp á slík námskeið á annarra vegum.

Sú aðstoð sem deildirnar leggja sig fram um að veita varðandi inntökuprófið felst í greinargóðum upplýsingum um uppbyggingu og framkvæmd prófsins og sýnishornum af prófspurningum sem er að finna á heimasíðu prófsins.

Já, þú getur geta sótt um úrræði hjá Nemendaráðgjöf Háskóla Íslands fyrir 20. maí. Sjá frekari upplýsingar á heimasíðu NHÍ.

Já, nemendur með ótímabundinn, virkan samning fá úrræði en þeir sem eru með tímabundinn samning þurfa að sækja sérstaklega um úrræði vegna inntökuprófa.

Prófið sjálft

Læknadeild leggur til reiknivélar sem nota skal í prófinu og munu þær liggja frami á prófstað. Það er með öllu óheimilt að koma með eigin reiknivélar eða hjálpargögn og nota á prófstað. Nýjar reiknivélar voru teknar í notkun vorið 2018 af tegundinni Casio fx-350ES PLUS.

Prófið er eingöngu á íslensku en sumum prófhlutum fylgja íslensk/enskar orðaþýðingar. Einnig er leyfilegt að svara á ensku í skriflegum svörum svo sem í siðfræði.

Orðabækur eru ekki leyfðar í prófinu þar sem orðskýringar fylgja oft með, en sumum prófhlutum fylgja íslensk/enskar orðaþýðingar. Einnig er leyfilegt að svara á ensku í skriflegum svörum svo sem í siðfræði.

Hver próflota tekur tvo klukkutíma. Almennt er ekki leyfilegt að yfirgefa prófstað fyrr en eftir klukkutíma. Leyfi prófgæslumanna þarf til þess að fara á salerni.

Engum efnislegum spurningum er svarað á prófstað en þú getur óskað eftir blöðum til að skrá athugasemdir á. Farið er yfir allar athugasemdir að prófi loknu. Komi í ljós galli í spurningu er tekið tillit til þess við útreikning einkunna.

Þyngd prófspurninga er alltaf matsatriði og það sem einum finnst þungt getur öðrum fundist létt.

Prófið verður miðað við það að allir sem hafa þá þekkingu sem krafist er til stúdentsprófs af bóknámsbraut ættu að geta náð góðum árangri á prófinu.

Það getur verið breytilegt milli ára hvar áherslan liggur en ávallt verður megináherslan á raungreinar í prófinu.

Sjá upplýsingar um fjölda og vægi spurninga á síðasta prófi.

Nei, en í þeim hluta sem snýr að siðfræði verða spurningar sem gætu flokkast sem slíkar og verða þær samdar og farið yfir þær af viðeigandi sérfræðingum.

Nemandi verður að ná lágmarkseinkunn 5,0 að meðaltali í spurningum um siðfræðileg álitaefni.

Nei, satt/ósatt spurningar eru ekki lengur lagðar fyrir á inntökuprófinu.

Sá prófhluti er ekki úr ákveðnu námsefni en gengur út á skilning á texta og rökhugsun.

Ef það gengur að nota hann fyrir sýniprófið, sem aðgengilegt er nokkrum dögum fyrir prófið sjálft, þá er það í góðu lagi.

Já, en athugið að heyrnarhlífar mega ekki hafa neina tengimöguleika.

Nei, það verður ekki dregið frá fyrir röng svör.

Nei.

Að loknu prófi

Gert er ráð fyrir að það taki allt að einn mánuð að fara yfir úrlausnir og að einkunnir verði birtar ekki seinna en um miðjan júlí.

Allir sem samþykktir eru í nám að loknu inntökuprófi þurfa að staðfesta að þeir þiggi plássið vegna þess að ef einhver gerir það ekki þarf að vera hægt að bjóða það næsta manni á lista.

Inntökuprófið gildir einungis fyrir inntöku sama árs og það er tekið. Veljir þú að nýta þér ekki réttinn til að hefja nám fellur hann niður.

Samkvæmt 4 gr. reglna um inntökuprófið geta próftakar sótt um í annað nám eftir að niðurstöður hafa verið birtar og fram til 20. júlí.

Kennsla í læknisfræði hefst mánudaginn 10. ágúst (ath. skyldumæting er fyrstu vikuna).

Kennsla í Sjúkraþjálfunarfræði og Tannlæknisfræði hefst mánudaginn 17. ágúst.

Upplýsingar um inntökuprófið
""

Inntökupróf í Læknadeild og Tannlæknadeild er haldið í júní ár hvert.

Læknagarðar

Uppbygging prófsins og sýnishorn.

Hafðu samband
Ef þú hefur spurningar eða athugasemdir:
Skrifstofa læknadeildar
Virka daga 9:00 – 15:00
Almenn þjónusta

Við bendum á þjónustumiðju HÍ fyrir allar almennar fyrirspurnir. Einnig er hægt að mæta á Þjónustuborðið á Háskólatorgi eða nota spjallmenni HÍ hér neðst til hægri á síðunni.

Læknagarðar

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil