Læknagarðar
Upplýsingar um inntökuprófið

Inntökupróf Læknadeildar og Tannlæknadeildar er staðpróf sem lagt er fyrir í rafræna prófakerfinu INSPERA og samanstendur af sex tveggja klukkustunda próflotum sem dreifast á tvo daga í júní ár hvert.

Meginhluti prófsins (70%) eru krossaspurningar um efni sem kennt er í framhaldsskólum og tilheyrir raunvísindum, hugvísindum og félagsvísindum. Spurningarnar koma úr spurningasafni, sem er afrakstur samstarfs Læknadeildar og kennara úr fjölmörgum framhaldsskólum landsins.

Allar spurningar í þessum hluta prófsins hafa sama vægi en fjöldi spurninga í hverjum prófhluta er ekki fast ákveðinn milli ára. Árið 2025 var fjöldi spurninga sem hér segir:

  • Eðlisfræði: 24 spurningar
  • Efnafræði: 50 spurningar
  • Enska: 27 spurningar
  • Félagsfræði: 7 spurningar
  • Íslenska: 27 spurningar
  • Náttúrufræði: 70 spurningar
  • Saga: 7 spurningar
  • Sálfræði: 3 spurningar
  • Stærðfræði: 35 spurningar​​​

Aðrir prófhlutar byggja ekki á ákveðnu námsefni (30%), en leggja mat á almenna þekkingu, rökfærslu/upplýsingalæsi og nálgun og úrlausn siðfræðilegra vandamála. Þessir prófhlutar eru einnig á formi krossaspurninga, fyrir utan stuttar ritgerðir í spurningum um siðfræðileg álitamál og skal próftaki ná lágmarkseinkunn 5,0 að meðaltali í þeim spurningum.

Árið 2025 var fjöldi og vægi spurninga sem hér segir:

  • Almenn þekking: 100 spurningar, 10%
  • Siðfræði: 5 spurningar, 10%
  • Rökfærsla/Upplýsingalæsi: 20 spurningar, 10%
Sýnishorn

Sýnishorn hér að neðan gefa nokkuð raunsanna mynd af gerð og eðli spurninga:

Í krossaspurningum á einungis að merkja við einn svarlið í hverri spurningu, þ.e. rétta eða réttasta svarið. Ef merkt er við fleiri svarliði telst það sem rangt svar. Ekki er þó dregið frá fyrir rangt svar.

Formúlublöð

Ákveðnum prófhlutum fylgja formúlublöð með þeim jöfnum/formúlum sem kennarar framhaldsskóla telja að próftakar þurfi að hafa við hendina til þess að geta svarað viðkomandi spurningum. Hér má sjá sýnishorn af formúlublöðum:

Reiknivélar

Læknadeild útvegar próftökum reiknivélar sem munu liggja frammi á prófstað.

Ekki er heimilt að nota aðrar reiknivélar eða hjálpargögn í prófinu en þau sem Læknadeild útvegar.

Reiknivélarnar eru af tegundinni Casio fx-350ES PLUS.

Um prófið
""

Inntökupróf í Læknadeild og Tannlæknadeild er haldið í júní ár hvert.

""

Algengar spurningar um inntökuprófið.

Hafðu samband
Skrifstofa læknadeildar
Virka daga 9:00 – 15:00
Almenn þjónusta

Við bendum á þjónustumiðju HÍ fyrir allar almennar fyrirspurnir. Einnig er hægt að mæta á Þjónustuborðið á Háskólatorgi eða nota spjallmenni HÍ hér neðst til hægri á síðunni.

Læknagarðar

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil