Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður undirrituðu á dögum nýjan samstarfssamning milli Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns og Háskóla Íslands, en safnið er þjóðbókasafn og bókasafn Háskóla Íslands samkvæmt lögum nr. 142/2011.

Endurskoðun samningsins var unnin á vegum samstarfsnefndar Lbs-Hbs og HÍ með aðkomu sérfræðinga beggja stofnana. Meðal áhersluatriða er að efla samstarf samningsaðila, vinna að markmiðum stjórnvalda um opinn aðgang að rannsóknaritum og rannsóknagögnum og að safnið komi á fót rannsóknaþjónustu fyrir háskólasamfélagið, m.a. til að miðla upplýsingum um opin vísindi og auðvelda birtingar í opnum aðgangi. Þá er áhersla á að efla upplýsingalæsi meðal nemenda og bæta aðgengi að rafrænum safnkosti m.a. í kennslukerfi skólans.

„Háskólabókasafn er hjarta hvers háskóla. Öflugt bókasafn með aðgengilegum upplýsingakerfum og gagnagrunnum er órjúfanlegur hluti af alþjóðlegum rannsóknaháskóla sem vill gera nemendum sínum kleift að takast á við þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í dag. Samningurinn er staðfesting á gagnkvæmum vilja og skilningi á mikilvægi samstarfsins undanfarna áratugi og til framtíðar,“ segir Jón Atli Benediktsson.

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil