- Jarðvísindafólk á Íslandi með tvær greinar í nýjasta hefti Nature
- Undanfari gossins stjórnaðist af samspili kvikuhreyfinga og spennulosunar
- Kvikan kom af meira dýpi en kvika í mörgum öðrum gosum
- Breytingar í efnasamsetningu gosefna veittu einstaka innsýn í flókin ferli við myndun og þróun kviku í rótum eldstöðva
- Afar sjaldgæft er að vísindamenn á Íslandi fái tvær greinar birtar í sama hefti Nature
Undanfari eldgossins í Fagradalsfjalli í fyrra var ólíkur undanfara margra gosa í heiminum og efnasamsetning hraunsins breyttist eftir því sem leið á gosið. Þetta er meðal niðurstaðna í tveimur vísindagreinum eftir fræðimenn við Háskóla Íslands og Veðurstofu Íslands og samstarfsfólk sem birtust í dag í nýjasta hefti vísindatímaritsins Nature.
Vísindamenn hér á landi fylgdust afar náið með jarðhræringunum á Reykjanesi sem segja má að hafi hafist í desember 2019 en náðu ákveðnu hámarki í gosinu sem hófst 19. mars 2021 og stóð í um hálft ár. Þéttriðið net mælitækja og nánd við byggð á suðvesturhorninu gerðu vísindamönnum kleift að kortleggja ítarlega framvinduna en ekki hefur gosið á þessum slóðum í um 800 ár.
Dró úr skjálftavirkni skömmu fyrir gos
Önnur greinin sem birtist í Nature í dag ber yfirskriftina „Deformation and seismicity decline before the 2021 Fagradalsfjall eruption“ en þar er fjallað um aðdragandann að gosinu og hvernig hann greinir sig frá undanfara margra gosa í heiminum. Greinin var unnin undir forystu Freysteins Sigmundssonar, vísindamanns við Jarðvísindastofnun Háskólans, og Michelle Parks, sérfræðings í jarðskorpuhreyfingum við Veðurstofu Íslands, en að henni kom einnig fjöldi annarrra vísindamanna við stofnanirnar tvær og Íslenskar orkurannsóknir ásamt vísindafólki í Bretlandi, Nýja-Sjálandi og Tékklandi.
Eins og flestum landsmönnum er eflaust kunnugt skalf jörð töluvert á Reykjanesi og víðar vikurnar áður en gosið hófst. Tímabilið einkenndist af spennulosun í jarðskorpunni en síðustu dagana fyrir gosið dró hins vegar úr jarðskorpuhreyfingum og skjálftavirkni á svæðinu í kringum gosstöðvarnar. Þetta er ólíkt aðdraganda eldgosa víða í heiminum, sem einkennast oft af stigvaxandi jarðskorpuhreyfingum og jarðskjálftum skömmu fyrir gos þegar kvika þrýstir sér upp á yfirborðið.
Samspil kvikuhreyfinga og spennulosunar
Vísindamennirnir sem standa að greininni benda á að þessa ólíku hegðun eldstöðvarinnar í Fagradalsfjalli megi skýra með samspili kvikuhreyfinga og þeirra krafta sem finna megi í jarðskorpunni og tengjast hreyfingum jarðskorpuflekanna. Þegar kvika þrýsti sér upp í gegnum jarðskorpuna í aðdraganda eldgosa geti þessir kraftar losnað úr læðingi með tilheyrandi jarðskjálftum og jarðskorpuhreyfingum í upphafi. Ef dragi úr jarðhræringum bendi það mögulega til þess að þessu ferli sé að ljúka og að kvika muni komast upp á yfirborð jarðar.

Jarðskorpuhreyfingar og jarðskjálftar í aðdraganda eldgossins sem hófst 19. mars 2021. a) Líkan af jarðskorpuhreyfingum 24. febrúar–19. mars sem sýnir láréttar færslur (e. horizontal displacements) sem örvar, og lóðréttar færslur (e. vertical displacements) með litaskala. Rauð lína sýnir hvar kvikugangurinn liggur og brotin svört lína hvar meginás flekaskilanna liggur b) Fjöldi jarðskjálfta á klukkustund sem fall af tíma (blátt) og heildarfjöldi skjálfta (rauð lína fyrir allt rannsóknasvæðið). c) Færslur á þremur landmælingapunktum sem fall af tíma. Eftir því sem líður á atburðarásina hægir á jarðskorpuhreyfingunum og jarðskjáltavirkni minnkar síðustu dagana áður en eldgos hefst. Úr grein Freysteins Sigmundssonar, Michelle Parks o.fl.
Á rúmlega þriggja vikna tímabili fyrir gosið í Fagradalsfjalli varð bæði mikil aflögun á jörðu og margir jarðskjálftar. Hvort tveggja tengdist myndun lóðrétts kvikugangs sem náði frá yfirborði og niður á rúmlega 8 km metra dýpi. Um leið losnaði orka úr jarðskorpunni sem hafði byggst upp vegna hreyfinga jarðskorpuflekanna. Jarðskjálftar urðu á nærliggjandi svæðum, þeir stærstu allt að 5,6 að stærð, sem einnig losuðu orku úr jarðskorpunni.
Vísindamennirnir benda einnig á í greininni að vægari skjálftavirkni síðustu dagana fyrir gosið megi mögulega rekja til þess að kvikan hafi þá verið komin nærri yfirborðinu, þar sem jarðskorpan er veikust og átökin í skorpunni því minni.
Niðurstöður rannsóknarinnar hafa þýðingu fyrir alþjóðasamfélagið og geta nýst stofnunum, sem sinna eldfjallavöktun víða um heim, við túlkun gagna tengdum jarðhræringum. Rannsóknin sýnir jafnframt, að sögn vísindamannanna, að taka þurfi tilliti til samspils eldstöðva og krafta í jarðskorpunni sem tengjast flekahreyfingum þegar spáð er fyrir um möguleg eldgos. Spennulosun í jarðskorpuflekum og minnkandi aflögun og tíðni jarðskjálfta geti verið undanfari ákveðinna tegunda eldgosa.
