Mannauðsstjórnun

Mannauðsstjórnun
MS gráða – 120 einingar
Meistaranám í mannauðsstjórnun er fræðilegt og hagnýtt nám fyrir þau sem vilja öðlast þekkingu og skilning á stjórnun mannauðs innan fyrirtækja og stofnana.
Námið snertir alla helstu grundvallarþætti í rekstri stofnana og fyrirtækja.
Skipulag náms
- Haust
- Inngangur að rekstri
- Mannauðsstjórnun
- Alþjóðleg mannauðsstjórnun
- Eigindleg aðferðafræðiB
- Starf stjórnandans, forysta og samskiptiB
- BreytingastjórnunB
- Aðferðafræði verkefnastjórnunarV
- Vellíðan og heilsueflandi þjónandi forystaV
- NeytendahegðunV
- ViðskiptasiðfræðiV
- Leiðtoginn og þjónandi forystaV
- Nýsköpunar- og frumkvöðlafræðiV
- Rekstur í sjávarútvegiVE
- StjórnarhættirV
- Þjónustugæði og þjónustumatV
- ViðskiptasiðfræðiV
- ViðskiptasiðfræðiV
- ÞekkingarstjórnunVE
- Vor
- Samskipti á vinnumarkaði
- Vinnusálfræði
- Þróun mannauðs
- Vinnuréttur
- Hagnýt tölfræði (áður Rannsóknir og tölfræði)B
- Framkvæmd stefnu og mat á árangriV
- Skipulag og atferliV
- Stjórnun nýsköpunarV
- Fjölbreytileiki og inngilding (inclusion) í skipulagsheildumV
- Sjálfbærni og framtíð fyrirtækjaV
- Stefnumiðuð samfélagsábyrgð fyrirtækjaV
- Árangur verkefna og eftirlitV
- SamningafærniV
- Stefnumiðuð stjórnunV
Inngangur að rekstri (VIÐ155M)
Markmiðið með námskeiðinu er að gefa nemendum breiða og haldgóða innsýn í þau fyrirbæri, lögmál og kenningar sem viðskiptafræðingum nauðsynlegt er að þekkja við rekstur bæði fyrirtækja og stofnana.
Námskeiðið byggist upp af sex efnisþáttum:
• aðferðarfræði
• rekstrarhagfræði
• fjármál
• reikningshald
• lögfræði
• þjóðhagfræði
Námskeiðið er sérstaklega sniðið að þörfum meistaranemenda sem hafa tekið fá eða engin námskeið í rekstrarhagfræði og fjármálum í grunnnámi og er skyldunámskeið fyrir þessa nemendur.
Fyrirkomulag: Kennsla fer fram á netinu og geta nemendur tekið námskeiðið þegar þeim hentar, en þeim er skylt að ljúka námskeiðinu innan árs frá því að viðkomandi hóf meistaranám. Próf fer fram tvisvar á ári, í ágúst og janúar ár hvert
Athugið! Unnið er að endurskipulagningu á námskeiðinu og kann það að taka einhverjum breytingum frá því sem hér er tilgreint.
Námskeiðið nýtist ekki til eininga í meistaranáminu.
Mannauðsstjórnun (VIÐ194F)
Námskeiðið miðar að því að gera nemendum kleift að tileinka sér nýjustu og helstu kenningar á sviði mannauðsstjórnunar og að nemendur öðlist skilning og þjálfun í notkun helstu kenninga í stjórnun mannauðs. Kenningum um mannauðsstjórnun er gerð ítarleg skil og er markmiðið að nemendur skilji mikilvægi mannauðsstjórnunar sem fræðigrein og sem mikilvægan þátt innan skipulagsheildarinnar. Kynntir verða helstu þættir mannauðsstjórnunar og er mikilvægt að nemendur geti tileinkað sér efni þeirra í kennslu- og dæmatímum þar sem fengist er við úrlausn raunhæfra dæma.
Alþjóðleg mannauðsstjórnun (VIÐ193F)
Námskeiðið miðar að því að gera nemendum kleift að tileinka sér nýjustu og helstu kenningar á sviði alþjóðlegrar mannauðsstjórnunar og að nemendur öðlist skilning og þjálfun í notkun helstu kenninga í stjórnun mannauðs í alþjóðlegum fyrirtækjum. Kenningum um alþjóðlega mannauðsstjórnun er gerð ítarleg skil og er markmiðið að nemendur skilji mikilvægi alþjóðlegrar mannauðsstjórnunar sem fræðigreinar og sem veigamikinn þátt innan alþjóðlegra skipulagsheilda. Fjallað verður um fjölbreytileika innan vinnustaða og alþjóðlegrar mannauðsstjórnunar og er áhersla á að nemendur geti tileinkað sér efni þeirra í kennslu- og dæmatímum þar sem fengist er við úrlausn raunhæfra dæma.
Eigindleg aðferðafræði (VIÐ184F)
Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum yfirsýn yfir eigindlegar aðferðir, sem notaðar eru til að safna og greina gögn um einstaklinga og skipulagsheildir. Nemendur munu fá þjálfun í að skilgreininga vandamál og semja rannsóknarspurningu. Þá munu nemendur skipuleggja og framkvæma gagnasöfnun, úrvinnslu gagna og greina frá niðurstöðum skriflega. Nemendur munu kynnast veikum og sterkum hliðum mismunandi aðferða innan eigindlegra rannsóknaraðferða, þannig að þeir geti valið þá aðferð, sem best hentar til að leysa tiltekið vandamál.
Starf stjórnandans, forysta og samskipti (VIÐ182F)
Í forgrunni námskeiðsins er starf stjórnandans, á öllum stjórnstigum, eðli þess og áskoranir. Starfsmannamál sem og samskiptaþátturinn er í brennipunkti og rauður þráður í öllum viðfangsefnum eða þáttum námskeiðsins. Forystuhlutverk stjórnandans er sérstaklega til skoðunar. Það er sett í samhengi við stjórnun mannauðsmála almennt og tengt við að stjórna starfsfólki í umbótaverkefnum og róttækum breytingum. Forysta er einnig skoðuð í tengslum við árangursríka teymisvinnu og aðferðir við að leysa og höndla ágreining og erfið starfsmannamál.
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist djúpa þekkingu á merkingu lykilhugtaka og góðan skilning á kenningarlegum viðmiðum, aðferðum og mögulegum leiðum stjórandans til að sinna starfinu með árangursríkum hætti. Nýttir verða fjölbreyttir kennsluhættir með það að markmiði að ýta undir áhuga, virkni og þátttöku nemenda.
Breytingastjórnun (VIÐ190F)
Í þessu námskeiði verður farið yfir helstu atriði breytingastjórnunar, s.s. innleiðingu breytinga, viðbrögð starfsmanna, helstu hindranir í vegi breytinga ásamt þeim hamlandi og hvetjandi kröftum sem eru að verki í breytingaferlinu. Farið verður ítarlega í kenningar og aðferðir sem breytingastjórnun byggir á og ræddar verða algengustu lausnir og aðferðir í stjórnun breytinga. Rætt verður um hlutverk leiðtoga, stjórnenda almennt og millistjórnenda í breytingum sem og krísustjórnun. Fjallað verður einnig um fyrirtækjamenningu og hvers vegna hún er mikilvægur þáttur í breytingaferlinu.
Aðferðafræði verkefnastjórnunar (VIÐ172F)
Markmið námskeiðsins er tvíþætt. Í fyrsta lagi að kynna fyrir nemendum helstu kenningar og aðferðir, sem þróaðar hafa verið á sviði verkefnastjórnunar. Takmarkið er, að nemendur öðlist góðan skilning á þætti verkefnavinnu og verkefnastjórnunar í rekstri fyrirtækja annars vegar, og hæfni til stjórnunar einstakra verkefna hins vegar. Nemendur kynnist þeim þáttum, sem stuðla að markvissri og skilvirkri verkefnastjórnun. Nemendur kynnist uppbyggingu áætlunar, framvindu og lúkningu í verkefnum. Nemendur kynnast jafnframt hugbúnaði og tækni sem nýta má við verkefnastjórnun. Nemendur fái kynningu á verkefnum í alþjóðlegu umhverfi og Agile hugmyndafræði.
Vellíðan og heilsueflandi þjónandi forysta (VIÐ175F)
Vellíðan starfsmanna fær æ meiri athylgi og umræða um forvarnir kulnunar í starfi hefur aukist undanfarið. Stjórnendur og leiðtogar leita leiða til að skapa heilbrigt starfsumhverfi sem eflir vellíðan starfsfólks og bætir árangur.
Í þessu námskeiði verður fjallað um nýja þekkingu um árangursríkar leiðir til að skapa heilbrigt starfsumhverfi. Séstaklega verður rýnt í samspil starfsumhverfis, forystu, heilsu og líðan starfsfólks.
Markmiðið er að nemendur kunni skil á áhrifaþáttum heilbrigðis í starfi, þekki helstu kenningar í þessu samhengi, fái innsýn í tengsl starfsumhverfis, forystu og heilbrigðis og þekki nýjar rannsóknir á sviðinu. Sérstaklega verðu rýnt í gagnreynd líkön um heilbrigt starfsumhverfi. Fjallað verður um heilsueflandi forystu og forvarnir kulnunar í starfi.
Nemendur rýna í raunveruleg dæmi og setja fram áætlun um leiðir til að þróa og styrkja heilbrigt starfsumhverfi með áherslu á sameiginlega ábyrgð leiðtoga og starfsfólks. Nemendur heimsækja fyrirtæki sem hafa náð árangri í þessum efnum og fá innsýn í reynslu stjórnenda í því sambandi.
Námsefni og verkefni snúa að fræðilegri og hagnýtri þekkingu, nemendur rýna í nýjar rannsóknir á sviðinu, greina raunveruleg dæmi og setja fram áætlun um heilbrigt starfsumhverfi miðað við raunverulegar aðstæður.
Neytendahegðun (VIÐ192F)
Skilningur á hegðun neytenda er grundvallarforsenda árangurs í markaðsstarfi. Þekking á neytendum; þörfum þeirra og löngunum, þekking á hvernig þeir hegða sér og af hverju þeir hegða sér eins og þeir gera, gerir stjórnendum kleift að þróa árangursríkar markaðsáætlanir. Slík þekking er um leið forsenda þess að þróa vörur og þjónustu, sem nær árangri á markaði, aðstoðar við að koma auga á ákjósanlega markhópa og er forsenda þess að hægt sé að þróa markaðssamskipti, sem eru viðeigandi og ná athygli markhópsins.
Námskeiðið byggir bæði á fyrirlestrum og verkefnum. Í fyrirlestrum verður áhersla lögð á grundvallarlíkön neytendahegðunar, en jafnframt verður farið yfir nýjustu þekkingu á sviðinu. Nemendur munu bæði vinna einstaklingsverkefni og hópverkefni til að öðlast betri þekkingu og skilning á hegðun neytenda.
Viðskiptasiðfræði (VIÐ191F)
Námskeiðið fjallar um þær siðferðilegu áskoranir sem fyrirtæki geta staðið frammi fyrir og hvernig taka má á þeim áskorunum hvort sem þær eru að finna innan fyrirtækjanna sjálfra eða í samskiptum þeirra við stjórnvöld og samfélagið í heild. Námskeiðið hefur að markmiði að bæta hæfni og getu nemenda með því að kynna fyrir þeim kenningar innan viðskiptasiðfræðinnar og vinna með þær í samvinnu við ýmsa þátttakendur námskeiðsins úr röðum atvinnulífs. Kennsluefni námskeiðsins, meðal annars bókin Business Ethics, veitir tækifæri til þess að kynnast og greina siðferðilegar áskoranir í formi dæmisagna í lok hvers kafla. Kennsluefnið í heild varpar ljósi á þróun viðskiptasiðfræðinnar sem viðfangsefni innan fyrirtækja og samfélaga, svo og þróun fyrirtækjamenningar í samhengi við viðskiptasiðfræði og leiðir til að takast á við siðferðileg álitamál í viðskiptum. Enn fremur hvaða áskoranir og tækifæri á sviði viðskiptasiðfræðinnar geta boðið fyrirtækjum og samfélagi. Háskóla Íslands er umhugað að mennta fólk þar sem lögð er áhersla á samfélagslega ábyrgð, jafnrétti, nýsköpun og þróun sem miðar að aukinni sjálfbærni með gott siðferði að leiðarljósi og verður það rauður þráður í gegnum námskeiðið.
Í námskeiðinu verða helstu hugtök og heiti innan viðskiptasiðfræði kynnt í gegnum fyrirlestra, þátttöku nemenda við greiningu og kynningu á hugtökum innan viðskiptasiðfræðinnar. Enn fremur munu gestir úr atvinnulífi og stjórnsýslu vera gestir í námskeiðinu þar sem þeir miðla af reynslu sinni þegar kemur að ólíkum þáttum viðskiptasiðfræðinnar. Horft er til þess að þema hvers tíma verði rætt við viðkomandi gest. Tímunum er skipt þannig að fleiri en eitt þema getur verið tekið fyrir hverju sinni. Þema getur líka flotið yfir fleiri en einn tíma.
Allir nemendur velja sér þema til þess að skilgreina (líka þeir sem taka 1,5 og 3,0 einingar). Nemendur sem taka 6,0 (HSP710F) og 7,5 ECTS einingar fá tækifæri til þess að leggja mat á stöðu viðskiptasiðferðis í fyrirtæki í samvinnu við atvinnulífið.
Athygli er vakin á því að námskeiðið er kennt í seinni lotu annarinnar, samkvæmt lotukerfi viðskiptafræðideildar. Hefst námskeiðið eftir miðjan október og lýkur í byrjun desember. Mikilvægt er að allir mæti í fyrsta tíma þegar farið er yfir skipulag námskeiðsins og þar á meðal hvað nemendur með ólíkar einingar þurfa að skila í námskeiðinu (en nemendur geta tekið 1,5 einingu, 3 einingar, 6 einingar (HSP710F) eða 7,5 ECTS einingar).
Leiðtoginn og þjónandi forysta (VIÐ178F)
Markmið
- að nemendur öðlist þekkingu á kenningum um forystu og leiðtoga,
- sérstök áhersla er lögð á að skoða leiðtogahæfni út frá víðtæku sjónarhorni,
- fjallað er um leiðtoga og hvaða þætti þeir þurfa að vera meðvitaðir um varðandi hlutverk sitt,
- fjallað um mikilvægi sjálfsþekkingar, almennt og sérstaklega hjá leiðtogum og nýjir straumar kynntir á því sviði,
- nemendur læra um tengsl vellíðunar starfsmanna og stjórnun.
Nemendum eru kynntar hvaða kenningar hafa verið settar fram, þróun fagsins og nútímaumræða um hvernig stjórna megi á sem árangursríkastan máta. Einnig eru kynnt til sögunnar kenningar úr jákvæðri sálfræði og manngerðafræði og tengsl þeirra við leiðtogafræði.
Nýsköpunar- og frumkvöðlafræði (VIÐ186F)
Markmiðið með námskeiðinu er að veita nemendum yfirsýn um fræðasviðið nýsköpunar- og frumkvöðlafræði og undirbúa þá undir frekara nám, bæði fræðilegt og hagnýtt.
Farið verður í helstu kenningar og álitamál innan sviðsins, nýlegar fræðigreinar rýndar og kynnt verkfæri sem nota má til að greina helstu strauma og stefnur nýsköpunar í atvinnulífinu.
Rekstur í sjávarútvegi (VIÐ282M)
Sjávarútvegur hefur um aldir verið ein mikilvægasta atvinnugrein þjóðarinnar. Í námskeiðinu fá nemendur yfirsýn yfir helstu þætti, er varða rekstur sjávarútvegsfyrirtækja, starfsumhverfi þeirra, tækifæri og afkomu. Farið verður yfir sögu og þróun á Íslandi undanfarna áratugi, þróun fiskveiðistjórnunar, kvótakerfið og aðrar leiðir, til að stjórna fiskveiðum við Ísland, svo sem sóknar- og veiðarfæratakmarkanir og verður það borið saman við það, sem þekkist erlendis. Þá verður fjallað um afurðir, vinnsluleiðir, sölu- og markaðssetningu fyrir helstu afurðir og hvaða tækifæri eru í atvinnugreininni. Nemendur vinna raunhæf verkefni á ýmsum sviðum í námskeiðinu.
Námskeiðið verður næst kennt haustið 2024
Kennsla og gestafyrirlesarar: Ágúst Einarsson prófessor, Ásta Dís Óladóttir dósent, Ragnar Árnason prófessor og Sigurjón Arason prófessor
Námskeiðið er í nánu samstarfi við fyrirtæki í sjávarútvegi og vinna nemendur raunhæf verkefni með stjórnendum fyrirtækja á borð við Marel, Vísi, Ísfélag Vestmannaeyja, Brim og fleiri.
Stjórnarhættir (VIÐ198F)
Markmið námskeiðsins er að stuðla að sem mestri getu og færni nemenda í stjórnarháttum, ekki síst þegar kemur að hlutverki, verkefnum og ábyrgð stjórnar á stöðu og þróun fyrirtækja og stofnana gagnvart hluthöfum og öðrum hagsmunaaðilum í samfélaginu.
Markmiðið er einnig að opna augu nemenda fyrir þeirri fjölbreytni sem er að finna á fræðasviðinu og þeim mun sem kann að vera á skilgreiningu og framkvæmd stjórnarhátta í mismunandi löndum og heimshlutum.
Námskeiðið miðar að því gegnum fyrirlestra og kennsluefni að nemendur tileinki sér þekkingu af hinum fjölbreytta fræðilega grunni sem til er í faginu. Gegnum vinnu með dæmisögur og íslensk raundæmi, bæði í fyrirlestrum og í verkefnavinnu námskeiðsins, er markvisst ýtt undir leikni og hæfni nemenda
Námskeiðið er kennt á ensku.
Þjónustugæði og þjónustumat (VIÐ158M)
Í námskeiðinu er lögð áhersla á að nemendur hafi fræðilegar forsendur til að vinna með aðferðir þjónustumælinga hvort sem er út frá fræðilegu sjónarhorni eða hagnýtu. Nemendur vinna að framkvæmd þjónustumælinga í samráði við fyrirtæki eða stofnun og vinna skýrslu þar sem fram kemur rökstudd tillaga um með hvaða hætti á að forgangsraða úrbótaþáttum. Samhliða þessu verkefni vinna nemendur að fræðilegu yfirliti um eitthvert það viðfangsefni er tengist þjónustugæðum og þjónustumælingum.
Viðskiptasiðfræði (VIÐ196F)
Námskeiðið fjallar um þær siðferðilegu áskoranir sem fyrirtæki geta staðið frammi fyrir og hvernig taka má á þeim áskorunum hvort sem þær eru að finna innan fyrirtækjanna sjálfra eða í samskiptum þeirra við stjórnvöld og samfélagið í heild. Námskeiðið hefur að markmiði að bæta hæfni og getu nemenda með því að kynna fyrir þeim kenningar innan viðskiptasiðfræðinnar og vinna með þær í samvinnu við ýmsa þátttakendur námskeiðsins úr röðum atvinnulífs. Kennsluefni námskeiðsins, meðal annars bókin Business Ethics, veitir tækifæri til þess að kynnast og greina siðferðilegar áskoranir í formi dæmisagna í lok hvers kafla. Kennsluefnið í heild varpar ljósi á þróun viðskiptasiðfræðinnar sem viðfangsefni innan fyrirtækja og samfélaga, svo og þróun fyrirtækjamenningar í samhengi við viðskiptasiðfræði og leiðir til að takast á við siðferðileg álitamál í viðskiptum. Enn fremur hvaða áskoranir og tækifæri á sviði viðskiptasiðfræðinnar geta boðið fyrirtækjum og samfélagi. Háskóla Íslands er umhugað að mennta fólk þar sem lögð er áhersla á samfélagslega ábyrgð, jafnrétti, nýsköpun og þróun sem miðar að aukinni sjálfbærni með gott siðferði að leiðarljósi og verður það rauður þráður í gegnum námskeiðið.
Í námskeiðinu verða helstu hugtök og heiti innan viðskiptasiðfræði kynnt í gegnum fyrirlestra, þátttöku nemenda við greiningu og kynningu á hugtökum innan viðskiptasiðfræðinnar. Enn fremur munu gestir úr atvinnulífi og stjórnsýslu vera gestir í námskeiðinu þar sem þeir miðla af reynslu sinni þegar kemur að ólíkum þáttum viðskiptasiðfræðinnar. Horft er til þess að þema hvers tíma verði rætt við viðkomandi gest. Tímunum er skipt þannig að fleiri en eitt þema getur verið tekið fyrir hverju sinni. Þema getur líka flotið yfir fleiri en einn tíma.
Allir nemendur velja sér þema til þess að skilgreina (líka þeir sem taka 1,5 og 3,0 einingar). Nemendur sem taka 6,0 (HSP710F) og 7,5 ECTS einingar fá tækifæri til þess að leggja mat á stöðu viðskiptasiðferðis í fyrirtæki í samvinnu við atvinnulífið.
Athygli er vakin á því að námskeiðið er kennt í seinni lotu annarinnar, samkvæmt lotukerfi viðskiptafræðideildar. Hefst námskeiðið eftir miðjan október og lýkur í byrjun desember. Mikilvægt er að allir mæti í fyrsta tíma þegar farið er yfir skipulag námskeiðsins og þar á meðal hvað nemendur með ólíkar einingar þurfa að skila í námskeiðinu (en nemendur geta tekið 1,5 einingu, 3 einingar, 6 einingar (HSP710F) eða 7,5 ECTS einingar).
Viðskiptasiðfræði (VIÐ197F)

Þekkingarstjórnun (VIÐ183F)
Námskeiðið miðar að því að auka þekkingu og skilning nemenda á mikilvægi þekkingarstjórnunar og þekkingarfyrirtækja. Áherslan í námskeiðinu er á þekkingarstjórnun, mismunandi vinnurými og vinnufyrirkomulag.
Fjallað verður um kenningar og rannsóknir sem snúa að opnum vinnurýmum (verkefnamiðuðum vinnustöðum), kostum þeirra og göllum, þekkingarstjórnun, þekkingarfyrirtækjum og þekkingarstarfsfólki og reynt að greina hvernig hægt er að beita markvissri þekkingarstjórnun í atvinnulífinu. Þá verður fjallað um fjarvinnu og þekkingaröflun og miðlun í tengslum við hana. Farið verður yfir mótun ferla og skipulags til að afla nýrrar þekkingar, skráningu hennar og miðlun innan skipulagsheilda og hvernig nýta má þekkingu til að auka árangur. Þá verður rætt um netöryggi í tengslum við þekkingarstjórnun og áhrif samfélagsmiðla á vinnustaðinn. Nemendur þurfa að vera vel undirbúnir þar sem gert er ráð fyrir miklum umræðum og nemendur vinna raunverkefni.
Athugið að þetta námskeið er kennt annað hvert ár. Námskeiðið er kennt haustmisserið 2023 og svo næst 2025.
Samskipti á vinnumarkaði (VIÐ286F)
Markmið námskeiðsins er að veita nemendum í meistaranámi við viðskiptafræðideild innsýn inn í þau atriði sem leggja grunn að samskiptum aðila vinnumarkaðarins (employment/industrial relations). Fjallað verður um helstu kenningar vinnumarkaðsfræðanna, stofnanauppbyggingu vinnumarkaðarins, uppbyggingu og þróun og einkenni íslensks vinnumarkaðar. Ítarlega verður rætt um hlutverk og samskipti aðila vinnumarkaðarins þ.e. ríkisvalds, vinnuveitenda og stéttarfélaga. Skiptingu vinnumarkaðarins í almennan og opinberan verður gerð skil. Rætt verður um hlutverk stéttarfélaga, vinnuveitenda og ríksvaldsins á vinnumarkaði. Einnig verður fjallað um atvinnuþátttöku og sveigjanleika vinnumarkaðarins ásamt kjarabaráttu og jafnrétti. Rætt verður um kjarasamninga og þróun þeirra sem og verkföll og verkfallskenningar. Fjallað verður um samanburð á vinnumörkuðum annarra landa.
Vinnusálfræði (VIÐ282F)
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist fræðilega og hagnýta þekkingu á mannlegu atferli á vinnustað og geti nýtt þá þekkingu til að auka ánægju og árangur starfsfólks.
Í námskeiðinu verður m.a. fjallað um vinnustaðarannsóknir, val á starfsfólki, mat á frammistöðu og endurgjöf, hvatningu, starfsánægju, samskipti á vinnustöðum, forystu og fyrirtækjabrag. Tilteknum hugtökum og kenningum í vinnusálfræði verða gerð rækileg skil og takmarkanir þeirra og notagildi tekið til skoðunar.
Þróun mannauðs (VIÐ275F)
Í forgrunni námskeiðsins er markviss stjórnun á þróun mannauðs (Strategic Human Resource Development). Lögð er áhersla á að greina fræðileg skrif um lykilhugtök til þess að skapa góðan skilning og undirstöðuhæfni til árangursríkrar stjórnunar á þjálfun og starfsþróun mannauðs (HRD).Tengt er við námskenningar (Learning Theories). Einnig lítillega við fræðileg skrif um fullorðinsfræðslu og skipulagt formlegt nám jafnt sem óformlegan lærdóm í vinnuumhverfinu. Rík áhersla er lögð á stjórnunarferlið allt frá mótun þjálfunar- og starfsþróunarstefnu , gerð þarfagreiningar, hönnun námsleiða, framkvæmd, eftirfylgni og mat á árangri. Nýliðamóttaka og aðlögun verður skoðuð sérstaklega sem og þróun stjórnenda-/leiðtogafærni. Námið fer fram með fyrirlestrum, umræðum/vinnustofum, hópavinnu með rannsóknartengt verkefni og gestafyrirlestrum.
Vinnuréttur (VIÐ285F)
Í þessu námskeiði verður farið yfir helstu atriði vinnulöggjafarinnar og lög sem snerta starfsmannamál á almennum og opinberum vinnumarkaði. Rætt verður um kjarasamninga, kjaraviðræður, réttarstöðu trúnaðarmanna, lagalega hlið vinnustöðvanna, sáttastörf í vinnudeilum og Félagsdóm. Einnig verður fjallað um réttindi og skyldur launþega og vinnuveitenda, ráðningarrétt, þ.e. ráðningu starfsmanna, uppsögn og riftun ráðningarsamninga og réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum. Komið verður inn á jafnréttismál, veikinda- og slysarétt, orlofsrétt o.fl. Sérstaklega verður gerð grein fyrir réttindum og skyldum opinberra starfsmanna. Fjallað verður um helstu áhrif sem evrópulöggjöf og samþykktir Alþjóða vinnumálastofnunarinnar hafa á íslenskan vinnumarkað.
Hagnýt tölfræði (áður Rannsóknir og tölfræði) (VIÐ278F)
Markmið þessa námskeiðs er að styrkja tölfræði og aðferðafræði þekkingu nemenda og gera þeim betur kleift að tileinka sér rannsóknaraðferðir og rannsóknarniðurstöður. Farið verður yfir vandaðar rannsóknir og fjallað um þá tölfræði og aðferðafræði sem er nauðsynleg til að framkvæma þær. Einnig er ætlast til að nemendur framkvæmi sitt eigið rannsóknarverkefni sem undirbúning undir greiningarvinnu í atvinnulífinu og lokaverkefni til mastersgráðu.
Framkvæmd stefnu og mat á árangri (VIÐ283F)
Viðfangsefni námskeiðsins er framkvæmd stefnu og mat á árangri af innleiðingu stefnunnar hjá skipulagsheildum. Í námskeiðinu er framkvæmd stefnu hjá skipulagsheildum rædd í víðu samhengi alþjóðlegra áskorana, svo sem umhverfis og loftslagsmála sem og samfélagslegra áskorana. Rætt verður um alþjóðlegra sáttmála og skuldbindinga sem hafa áhrif á rekstrarumhverfi skipulagsheilda. Þá er fjallað um það hvernig árangur af starfi skipulagsheilda er metinn til að mynda vegna breytinga á lagalegum kröfum sem gerðar eru varðandi aukið gagnsæi og samþætta skýrslugjöf (integrated reporting/sjálfbærniskýrslur (TBL reporting)/samfélagsuppgjör. Rætt verður um alþjóðlega staðla, viðmið, leiðbeiningar, tól til árangursmats o.fl., til að mynda stefnukort, EFQM/CAF líkönin, UN Global Compact, sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna, Global Reporting Initiative svo fáein séu nefnd. Nemendur kynnast framkvæmd stefnu í íslenskum fyrirtækjum og stofnunum og vinna að raunhæfum verkefnum sem lúta að efnistökum námskeiðsins.
Skipulag og atferli (VIÐ274F)
Í námskeiðinu er farið yfir helstu kenningar um skipulagsheildir og atferli einstaklinga innan þeirra. Áherslan er á skipulag frá ólíkum sjónarhornum. Kenningarnar verða ræddar og styrkleikar þeirra og veikleikar dregnir fram í umræðum og verkefnum. Fyrir hvern tíma eru settar fram spurningar, sem ræddar eru í tímanum, en námskeiðið er allt á umræðuformi. Það er trú kennara, að besta leiðin til að tileinka sér gagnrýninn fræðilegan hugsunarhátt sé, að nemendur lesi og meti efnið á sjálfstæðan hátt. Af þeirri ástæðu liggur ekki eiginleg kennslubók til grundvallar í námskeiðinu, heldur eingöngu fræðilegar greinar með stuttum inngangi frá kennurum. Til stuðnings við lestur og verkefnavinnu mæla kennarar með eftirfarandi bókum um lestur fræðilegra greina og ritun fræðilegra yfirlita.
Stjórnun nýsköpunar (VIÐ276F)
Markmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í stjórnun nýsköpunar hvort sem um er að ræða þróun vöru, tækni eða þjónustu. Í námskeiðinu verður rætt um eðli nýsköpunar og hvernig hægt er að skapa henni sem best umhverfi og þá um leið stýra henni. Jafmframt verður veitt innsýn í opinbera styrki til fjármögnunar nýsköpunarverkefna. Námskeiðið mun hvorutveggja fást við hagnýt úrlausnarefni sem og rannsóknir sem gerðar hafa verið á umhverfi og stjórnun nýsköpunar.
Fjölbreytileiki og inngilding (inclusion) í skipulagsheildum (VIÐ288F)
Námskeiðið veitir nemendum tækifæri til að bera kennsl á þörfina á að þróa vinnuumhverfi sem byggir á jafnréttishugsun og inngildingu ólíkra hópa þar sem fjölbreytt framlag er velkomið. Nemendur læra að bera kennsl á félagslegt réttlæti/útilokun minnihlutahópa t.d. vegna kynþáttar, uppruna, aldurs, kyns, trúarbragða, kynhneigðar, fötlunar/færni, stéttar og annara fjölbreytileikaþátta í skipulagsheildum og nýta þekkinguna til að greina og beita aðferðum stjórnunar fjölbreytileika og inngildingar í skipulagsheildum. Nemendur kynnast nýjum rannsóknum á sviðinu til að efla gagnrýna hugsun um viðfangsefni eins og sjálfsmynd (identity), (ó)meðvitaða hlutdrægni, samvinnu í fjölbreyttum teymum, (ó)jöfn tækifæri í skipulagsheildum og tækifærum sem felast í fjölbreytileikanum.
Námskeiðið er kennt á ensku
Sjálfbærni og framtíð fyrirtækja (VIÐ289F)
Meginmarkmið námskeiðsins er að kynna fyrir nemendum þróunina sem mun hafa áhrif á fyrirtæki í framtíðinni og hlutverk sjálfbærni hvað varðar framtíð þeirra. Nemendur munu einnig fá gott yfirlit yfir það hvernig þessi nýja þróun samtvinnast skipulagsheildum og mörkuðum.
Hraðar breytingar í umhverfi skipulagsheilda krefjast þess að skoða verður núverandi stöðu sem og framtíð fyrirtækja. Í námskeiðinu verða því teknar fyrir nýjustu áherslur í stjórnun sem þegar eru nýttar í viðskiptalífinu. Námskeiðið er einstakt hvað varðar áherslur á framtíð fyrirtækja, innan samhengis sjálfbærni, þar sem rædd verður heildstæð sýn á skipulagsheildir og samhengi þeirra. Námskráin er byggð á nýjustu vísindaniðurstöðum, hagnýtum dæmum og verkefnum.
Markmiðið með námskeiðinu er:
- Að kynna fyrir nemendum nýjustu þróun í viðskiptaumhverfi.
- Að kanna áhrif núverandi þjóð- og rekstrarhagfræði á fyrirtæki og áhrif þessara þátta á framtíð skipulagsheilda.
- Að beita fræðilegri þekkingu til að skilja raunveruleg feril, en slíkt er gert með umræðum, rannsóknum og ritgerðum.
- Að stuðla að gagnrýninni hugsun um samtengingu þátta innan skipulagsheilda og samhengi þeirra í mesó- og þjóðhagfræðilegu samhengi.
- Að veita innsýn í hvernig fræðilegt sjónarhorn getur hjálpað til við að búa okkur betur undir framtíðina.
Stefnumiðuð samfélagsábyrgð fyrirtækja (UAU247F)
Í þessu 13 vikna námskeiði er gert ráð fyrir virkri þátttöku nemenda. Námskeiðið tekur mið af þeirri hugmynd að þótt stjórnvöld og óhagnaðardrifin félög skipti sköpum fyrir nútímasamfélag eru það fyrirtæki sem leggja grunn að þeirri verðmætasköpun sem velferð samfélagsins byggist á. Samhliða verðmætasköpuninni hafa fyrirtækin áhrif á samfélagið sem samanstendur af fjölmörgum hagaðilum sem og náttúrulegu umhverfi. Á móti kemur að það er samfélagið sem mótar leikreglur sem fyrirtæki starfa eftir sem og þær væntingar sem fyrirtæki taka mið af í þeirra ytra og innra umhverfi. Þar á meðal má nefna Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, t.d. markmið 8, 9, 12, 13, og 17, Parísarsamkomulagið, grundvallarviðmið Global Compact sáttmála Sameinuðu þjóðanna um samfélagslega ábyrgð, Global Reporting Initiative og fleira. Þessi samverkun fyrirtækja, samfélags (í víðasta skilningi þess orðs) og náttúrulegs umhverfis er viðfangsefni samfélagsábyrgðar fyrirtækja.
Burtséð frá persónulegum skoðunum fólks á samspili viðskipta og samfélags þá eru hagnaðardrifin fyrirtæki mikilvæg. Í þessu námskeiði er leitast við að kanna víddir slíks samspils frá sjónarhóli mismunandi hagaðila. Það er gert á gagnvirkan hátt, með því að skoða og greina málefni sem tengjast samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja, með hermileikjum (simulation) og með tilviksrannsóknum (hópverkefni).
Námskeiðinu er skipt upp í fimm megin hluta. Í fyrsta hluta er skoðað hvað samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja merkir, hverjir eru drifkraftar samfélagsábyrgðar og réttindi og skyldur fyrirtækja. Í öðrum hluta er sjónum beint að sjónarhorni hagaðila og í þriðja hluta er fjallað um efnahagslega þætti. Í fjórða hlutanum er fjallað um stefnumarkandi þátt samfélagsábyrgðar og í fimmta hluta sjónarmið sjálfbærrar þróunar.
Árangur verkefna og eftirlit (VIÐ290F)
Árangursstjórnun er mikilvægur hluti stofnanna og verkefna. Hún tryggir að aðgerðir séu í takt við stefnumótandi áherslur. Í þessu námskeiði læra nemendur að beita margskonar aðferðum í árangursstjórnun, öðlast hæfni í eftirliti verkefna og skilja mikilvægi árangursstjórnunar þannig að stefnumótandi markmið stofnanna náist.
Námskeiðið byggir á raundæmum (e. Case studies) og verkefnum sem fara fram í kennslustund. Þannig kynnast nemendur, eins og mögulegt er í kennslustofu, raunverulegum aðstæðum þar sem árangursstjórnun nýtist til að styðja ákvarðanatöku innan stofnanna.
Samningafærni (VIÐ284F)
Námskeiðið fjallar um samningagerð og samningafærni. Markmið þess er að undirbúa nemendur og veita þeim þjálfun í að takast á við greiningu tækifæra til verðmætasköpunar, lausn ágreinings, samningaviðræður, setja upp samning og útfæra ákvæði hans. Námskeiðið skiptist í fyrirlestra og raunhæf verkefni og æfingar. Í fyrirlestrum eru kynntar fræðikenningar á þessu sviði, og uppbygging og algeng ákvæði samninga eru skoðuð. Verkefnin felast aðallega í samningaæfingum sem taka mið af algengum úrlausnarefnum sem á reynir við samningagerð í viðskiptalífinu.
Stefnumiðuð stjórnun (VIÐ265F)
Námskeiðið miðar að því gegnum fyrirlestra og kennsluefni að nemendur tileinki sér þekkingu af hinum fjölbreytta fræðilega grunni sem til er í faginu. Gegnum vinnu með dæmisögur og íslensk raundæmi, bæði í fyrirlestrum og í verkefnavinnu námskeiðsins, er markvisst ýtt undir leikni og hæfni nemenda. Í námskeiðinu er horft á stefnumiðaða stjórnun út frá nokkrum sjónarhólum og út frá mismunandi gerðum fyrirtækja. Kennslan tekur mið af því að nám er ferli til að bæta kunnáttu þar sem saman fer inntak námskeiðsins, samhengi þess og framvinda lærdóms með hliðsjón af tilgangi og markmiðum þeirra aðila sem að ferlinu koma. Allt starf í námskeiðinu miðast að því að nemendur nái sem bestum árangri – en námsárangurinn veltur að sjálfsögðu á virkni og ástundun nemandans.
- Haust
- StarfsþjálfunV
- Vor
- StarfsþjálfunV
- Óháð misseri
- MS ritgerð
- MS ritgerð
- MS ritgerð
Starfsþjálfun (VIÐ0AFF)
Markmiðið er að auka færni nemenda með starfsþjálfun og efla tengsl þeirra við atvinnulífið. Starfsþjálfun fyrir nemendur í framhaldsnámi er metin til 7,5 eininga. Nemendur sem fá stöðu ljúka 200 tímum í starfsþjálfun, auk þess að skila skýrslu og dagbók. Nemendur vinna störf undir handleiðslu sérfræðinga hjá fyrirtæki eða stofnun og skulu verkefnin tengjast því fagsviði sem viðkomandi nemandi stundar nám á. Nánar er kveðið á um einstaka þætti starfsþjálfunarinnar í samningi við viðkomandi fyrirtæki eða stofnun sem og viðauka sem fylgir hverjum samningi.
Í upphafi hvers misseris eru þau störf sem í boði eru auglýst til umsóknar. Nemendur sækja um og uppfylli þeir skilyrði skv. reglum deildar fær það fyrirtæki eða stofnun sem að starfinu stendur umsóknir til skoðunar og velur umsækjanda sem hentar fyrir starfið en geta einnig hafnað öllum. Framkvæmd starfsþjálfunar fer svo eftir nánara samkomulagi aðila.
Viðskiptafræðideild getur ekki tryggt öllum þeim sem sækja um starfsþjálfun pláss hjá fyrirtækjum/stofnunum.
Ef fjöldi nemenda sem sækja um starfsþjálfun er meiri en þau pláss sem í boði eru þá er lokaákvörðun um val á nemanda hjá stjórnendum fyrirtækis/stofnunar og er þeim heimilt að hafna öllum umsóknum kjósi þeir svo.
Nánari upplýsingar má sjá í reglum deildar um starfsþjálfun sem og viðauka sem fylgir hverju starfi.
Starfsþjálfunarstöður eru auglýstar sérstaklega í upphafi hvers kennslumisseris. Allar frekari upplýsingar má finna hér.
Starfsþjálfun (VIÐ0AFF)
Markmiðið er að auka færni nemenda með starfsþjálfun og efla tengsl þeirra við atvinnulífið. Starfsþjálfun fyrir nemendur í framhaldsnámi er metin til 7,5 eininga. Nemendur vinna störf undir handleiðslu sérfræðinga hjá fyrirtæki eða stofnun og skulu verkefnin tengjast því fagsviði sem viðkomandi nemandi stundar nám á. Nánar er kveðið á um einstaka þætti starfsþjálfunarinnar í samningi við viðkomandi fyrirtæki eða stofnun sem og viðauka sem fylgir hverjum samningi.
Í upphafi hvers misseris eru þau störf sem í boði eru auglýst til umsóknar. Nemendur sækja um og uppfylli þeir skilyrði skv. reglum deildar fær það fyrirtæki eða stofnun sem að starfinu stendur umsóknir til skoðunar og velur umsækjanda sem hentar fyrir starfið en geta einnig hafnað öllum. Framkvæmd starfsþjálfunar fer svo eftir nánara samkomulagi aðila.
Viðskiptafræðideild getur ekki tryggt öllum þeim sem sækja um starfsþjálfun pláss hjá fyrirtækjum/stofnunum.
Ef fjöldi nemenda sem sækja um starfsþjálfun er meiri en þau pláss sem í boði eru þá er lokaákvörðun um val á nemanda hjá stjórnendum fyrirtækis/stofnunar og er þeim heimilt að hafna öllum umsóknum kjósi þeir svo.
Nánari upplýsingar má sjá í reglum deildar um starfsþjálfun sem og viðauka sem fylgir hverju starfi.
Starfsþjálfunarstöður eru auglýstar sérstaklega í upphafi hvers kennslumisseris. Allar frekari upplýsingar má finna hér.
MS ritgerð (MAU431L, MAU431L, MAU431L)
Meistaraprófsritgerð skal valin í samráði við leiðbeinanda (leiðbeinendur) úr hópi fastra kennara Viðskiptafræðideildar.
Ritgerðin skal vera 30 einingar og kynna nemendur niðurstöður rannsókna sinna.
Ritgerð skal skilað rafrænt í samræmi við auglýsingu þar að lútandi hverju sinni. Kennari og prófdómari skulu meta meistaraprófsritgerð til einkunnar samkvæmt almennum prófreglum Háskóla Íslands.
Ath.! Skv. reglum Háskóla Íslands eiga allar MS ritgerðir eiga að vera opnar eftir að þeim hefur verið skilað til Háskólabókasafns.
Æski stúdent þess að MS ritgerð hans verði lokuð í tiltekinn tíma, að lokinni brautskráningu, ber honum að senda rökstudda beiðni til sviðsstjóra Kennslusviðs HÍ og fá skriflegt samþykki hans. Æskilegt er að sótt sé um heimildina áður en ritgerðaskrif hefjast.
Umsókn um lokun meistararitgerða.

Hafðu samband
Nemendaþjónusta Félagsvísindasviðs er á
Þjónustutorgi í Gimli
s. 525 4500 nemFVS@hi.is
Opið virka daga frá 09:00 - 15:00
Gimli - Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík
Bóka viðtal við nemendaþjónustu Félagsvísindasviðs
Fylgstu með Félagsvísindasviði

Hjálplegt efni
Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.