Skip to main content

Ráðstefnan Viðskipti og vísindi

Ráðstefnan Viðskipti og vísindi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
11. mars 2024 8:30 til 15. mars 2024 17:30
Hvar 

Víða á háskólasvæðinu

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Ráðstefnan Viðskipti og vísindi fer fram dagana 11. til 15. mars 2024.

Viðskipti og vísindi er nú haldin í annað sinn dagana 11. til 15. mars. Á ráðstefnunni miðla rannsakendur úr háskólasamfélaginu fræðilegri þekkingu og rannsóknarniðurstöðum og stjórnendur og starfsfólk úr viðskiptalífinu miðla einnig reynslu sinni og þekkingu. Viðfangsefnin sem fjallað verður um á ráðstefnunni í ár eru fjölbreytt og meðal annars verður fjallað um stjórnun og jafnrétti, fjármál, hagfræði, markaðsfræði og þjónustu, viðbrögð við þjónusturofi, faglegt markaðsstarf í stafrænum veruleika, sjálfbærnistefnu fyrirtækja, mannauð og starfsánægju.

Ráðstefnan er árlegur vettvangur þekkingarmiðlunar á sviði viðskipta og tengdra greina þar sem þátttakendur njóta góðs af því að rannsakendur úr háskólasamfélaginu og fulltrúar frá ólíkum áttum atvinnulífsins sameina krafta sína.

Frekari upplýsingar um ráðstefnuna og dagskrá er að finna hér.

Öll áhugasöm eru hvött til að koma á ráðstefnuna. Aðgangur er ókeypis.

Viðskipti og vísindi er nú haldin í annað sinn dagana 11. til 15. mars. Á ráðstefnunni miðla rannsakendur úr háskólasamfélaginu fræðilegri þekkingu og rannsóknarniðurstöðum og stjórnendur og starfsfólk úr viðskiptalífinu miðla einnig reynslu sinni og þekkingu.

Ráðstefnan Viðskipti og vísindi