Hvenær
20. janúar 2023
09:50 til 11:40
Hvar

VR-II

Stofa 138

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
  • Bæta við í dagatal

    Meistaranemi: Christian Michael Barrera

    Heiti verkefnis: Í átt að kolefnishlutleysi Vestmannaeyja. Samanburður á mismunandi eldsneyti fyrir varahitun Vestmannaeyja
    ___________________________________________
    Leiðbeinandi: Rúnar Unnþórsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild HÍ

    Einnig í meistaranefnd: Christiaan Petrus Richter, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild HÍ

    Prófdómari: Ragnar Ásmundsson, verkefnisstjóri hjá Orkustofnun

    Ágrip

    Í þessari ritgerð eru mismunandi eldsneyti skoðuð fyrir notkun á varakatla fyrir hitaveitu Vestmannaeyja, sem hefur ekki áreiðanlegan orkugjafa. Í dag er notuð svartolía á varakatlana, en henni fylgir mikil losun og þörf er á hreinni valkostum. Sérstaklega í ljósi þess að jörðin okkar stendur frammi fyrir ört breytilegu loftslagi. Niðurstöður þessarar ritgerðar má nýta um allan heim á svæðum sem ekki hafa áreiðanlegan aðgang að hreinni orku.

    Skoðaðar voru ritrýndar heimildir um viðeigandi lífeldsneyti og rafeldsneyti og eftirfarandi sex önnur eldsneyti voru valin til rannsóknar: vetni, metanól, lífetanól, metan, lífdísill og ammoníak. Gögn um umhverfisáhrif, notkun hitavökva, kostnað, framboð og geymslu og flutning var safnað fyrir hverja eldsneytistegund þannig að hægt væri að nýta AHP líkan (e. Analytical Hierarchy Process) til að taka upplýsta ákvörðun.

    AHP greining fyrir Vestmannaeyjar sýndi að raf-metanól væri ákjósanlegasta eldsneytið, vetni var í 2. sæti og lífetanól í 3. sæti. Í rannsókninni var lögð megin áhersla á umhverfisáhrif. Niðurstaðan er sú að rafmetanól ætti að nota til varahitunar, en að frekari rannsókn yrði framkvæmd til að mæta þörfum nærliggjandi iðnaðar sem notar sömu eldsneytisgjafa.

    1920__XP23633.jpg
    Efnisorð
    Ábyrgðaraðili

    Deila

    Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil