Skip to main content

Hönnunarkeppni HÍ

Hönnunarkeppni HÍ - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
5. febrúar 2022 12:00 til 15:30
Hvar 

Háskólabíó - Stóri salur

Nánar 
Fer fram á íslensku
Öll velkomin

Hönnunarkeppni HÍ verður haldin í 30. skipti þann 5. febrúar næstkomandi í Háskólabíó. Keppnin er skipulögð af nemendum í Iðnaðarverkfræði og vélaverkfræði við Háskóla Íslands.

Keppnin gengur út á að búa til tæki sem leysir stutta braut með þrautum. Tækið verður að keyra af sjálfsdáðum og má ekki vera stjórnað af lifandi veru.

Keppnin er opin öllum og eru vegleg verðlaun í boði fyrir fyrstu sætin.

1. sæti: Kr. 400.000,- frá Marel
2. sæti: Kr. 300.000,- frá Marel
3. sæti: Kr. 200.000,- frá Marel

Frumlegasta hönnunin: Kr. 200.000,- frá Samey Robotics.

Keppnin er hluti af dagskrá UTmessunnar 2022 sem, vegna samkomutakmarkanna, verður formlega haldin 25. maí n.k.Einnig er keppnin í samstarfi við Verkfræðingafélag Íslands.

Keppnin er opin áhorfendum í samræmi við gildandi fjöldatakmarkanir og sóttvarnaráðstafanir. Áhorfendur skulu bera grímu og það skal vera 1 metri á milli ótengdra aðila.

Hvetjum alla til að mæta og fylgjast með!

Facebook viðburður

Hönnunarkeppni HÍ, laugardaginn 5. febrúar 2022, klukkan 12.00 í Háskólabíó

Hönnunarkeppni HÍ