Skip to main content

Hátíð sjálfbærni

Hátíð sjálfbærni - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
6. desember 2023 14:00 til 16:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Sjálfbærnistofnun HÍ stendur á tímamótum og boðar til málþings í Hátíðasal Háskóla Íslands þar sem fjallað verður um sjálfbærni frá ýmsum hliðum og fjölbreytt verkefni verða kynnt. Leitast verður við að svara ýmsum spurningum. Hvar stöndum við þegar kemur að sjálfbærni? Hver eru brýnustu verkefnin? Hvers vegna er mikilvægt fyrir HÍ að vera leiðandi í sjálfbærni?

Streymt verður frá viðburðinum

Dagskrá:

  • Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, setur málþingið.
  • Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður: Sjálfbærnistofnun – Saga og helstu verkefni 
  • Guðrún Pétursdóttir, prófessor emeritus og fyrrverandi forstöðumaður: NORDRESS, norrænt öndvegissetur um náttúruvá og öryggi samfélaga.
  • Ólafur Ögmundarson, dósent við Matvæla- og næringarfræðideild: Ávarp frá formanni sjálfbærninefndar HÍ.
  • Lára Hrönn Hlynsdóttir og Ásdís Björk Gunnarsdóttir, verkefnisstjórar SSHÍ, og Sólrún Sigurðardóttir, verkefnisstjóri á Framkvæmda- og tæknisviði HÍ: Kynning á nýrri sjálfbærniskýrslu HÍ.

Pallborðsumræður um sjálfbærni:

  • Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri Lýðheilsusviðs hjá Embætti landlæknis
  • Eggert Benedikt Guðmundsson, leiðtogi sjálfbærrar þróunar hjá forsætisráðuneytinu
  • Elva Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Festu
  • Ólafur Páll Jónsson, prófessor í heimspeki á Menntavísindasviði HÍ.
  • Pallborðsstjóri er Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar.

Fundarstjóri er Sigríður Þorgeirsdóttir, prófessor í heimspeki.

Boðið verður upp á léttar veitingar á Litla torgi HÍ að málþingi loknu.

Öll velkomin.

Hátíð sjálfbærni verður í Hátíðasal í Aðalbyggingu HÍ.

Hátíð sjálfbærni