text

Ólöf Guðný Geirsdóttir

Prófessor Prófessor
Heilbrigðisvísindasvið
Matvæla- og næringarfræðideild
Tölvupóstur
Sími
Aðsetur
Nýi Garður -  Ng-307
Sérsvið
Ágrip

Meginviðfangsefni Ólafar í rannsóknum eru næringarástand aldraðra og aldurstengt færnitap. Rannsóknirnar hafa það að markmiði að svara því hvernig fæðuval og hreyfing hefur áhrif á líðan og færni þegar komið er á þriðja æviskeiðið. Lífsstílsþættir eins og matur og hreyfing eru mikilvægir alla ævi en það sem margir gera sér ekki grein fyrir að þegar komið er inn á þriðja æviskeiðið skiptir matur og hreyfing mjög miklu máli hvað varðar viðhald líkamlegrar og andlegrar færni. Í rannsóknarverkefnum um næringarástand og færni voru þróuð matvæli fyrir þarfir aldraðra í samvinnu við ýmis matvælafyrirtæki t.d í samvinnu við MS hafa verið tveir drykkir verið þróaðir mtt sérþarfa þe. Hleðsla og Næring+ Einnig hefur hún komið að ráðleggingum um mat og næringu eldri aldurshópa í samvinnu við Landlæknisembættið (https://island.is/naering-radleggingar-landlaeknis/naering-eldra-folk ) ásamt því að vinnu við uppfærslu á nýjum Norrænum ráðleggingum (https://www.norden.org/en/publication/nordic-nutrition-recommendations-2023 ). Ólöf var tilnefnd 2018 sem framtíðar vísindamaður innan öldrunarrannsókna af norræna Öldrunarfræðifélaginu og norræna Öldrunarlæknafélaginu. Ólöf Guðný Geirsdóttir — (rais.is)

Námsferill
  • 2011 Doktorspróf Háskóli Íslands Næringarfræði
  • 2004 Starfsréttindanám Háskóli Íslands Kennsluréttindi
  • 2001 Meistarapróf Háskóli Íslands Næringarfræði
  • 1999 BS Háskóli Íslands Matvælafræði
Námskeið kennd 2026 - 2027
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil