Mynd af fjórum nemendum að ræða saman
Tungumál kennslu
Íslenska og enska.
Lengd náms
Þrjú ár - 180 eða 240 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

Meistarapróf (MS) í faraldsfræði eða skyldum greinum á stigi 6.2 með a.m.k. 30 ECTS lokaverkefni og fyrstu einkunn, 7,25. Heimilt er að veita undanþágu þeim umsækjendum sem hafa lokið 90-120 ECTS meistaraprófi á stigi 6.1 með lokaverkefni undir 30 ECTS, hafi þeir í umsókn sinni gert grein fyrir rannsóknarreynslu, sem fastanefnd metur sem ígildi 30 ECTS lokaverkefnis.

Umsækjendur þurfa einnig að hafa lokið eftirfarandi eða sambærilegum námskeiðum:
LÝÐ202F Verklag í vísindum
LÝÐ107F Faraldsfræði
LÝÐ105F Líftölfræði I
LÝÐ301F Klínísk spálíkön.

Í sérstökum tilfellum getur stjórn námsins, í samráði við doktorsnámsnefnd hlutaðeigandi fræðasviðs, heimilað umsækjanda að leggja inn umsókn áður en skilyrði um námskeið er að fullu uppfyllt, og ljúka völdum námskeiðum á fyrsta ári námsins.

Staðfestingu á enskukunnáttu er krafist sé íslenska ekki fyrsta tungumál umsækjanda.

Nemendur þurfa að ljúka 180e í doktorsverkefni og 3-6e námskeiði í vísindasiðfræði, auk námskeiðanna LÝÐ085F Aðferðir í faraldsfræði og LÝÐ097F Viðfangsefni í faraldsfræði hafi þeim ekki þegar verið lokið á fyrra námsstigi.

Auk fræðilegs inngangs telur ritgerð til doktorsprófs í faraldsfræði að lágmarki þrjú handrit vísindagreina og skulu tvær þeirra vera birtar eða samþykktar til birtingar í ritrýndum vísindatímaritum.

Gagnlegt efni
Hafðu samband
Centre of Public Health Science
Sturlugata 8
Weekdays 10-12 am.
PHD Coordinators
DeCode building

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil