MA-próf í lögfræði frá Háskóla Íslands eða sambærilegt próf í lögfræði frá öðrum háskóla með 1. einkunn.
Doktorsnám við Lagadeild er 180 einingar (ECTS). Samhliða samningu ritgerðar skal doktorsnemi stunda nám eins og gert er ráð fyrir í rannsóknaráætlun. Námskeið, verkefni og annað framlag doktorsnema skal jafngilda 30 af 180 einingum (ECTS) en doktorsritgerð 150 einingum (ECTS).
Námskeið sem doktorsnema er skylt að sækja skulu m.a. vera fólgin í fræðslu um undirstöðuþekkingu á sviði lögfræðirannsókna, þ. á m. rannsóknaraðferðir. Ef, að mati leiðbeinanda og doktorsnefndar, er talin þörf á að bæta enn frekar við undirstöðuþekkingu doktorsnema er heimilt að gera kröfu um að hann leggi stund á bóknám sem svari til allt að 30 eininga (ECTS), auk framangreindra 180 eininga.
Kolbrún Eggertsdóttir,
Gæðastjóri
Sigrún Daníelsdóttir Flóvenz
Verkefnisstjóri