Skip to main content

Viðskiptafræði, BS, 120 einingar

Viðskiptafræði, BS, 120 einingar

Félagsvísindasvið

Viðskiptafræði

BS gráða – 120 einingar

Viðskiptafræði sem aðalgrein 120e byggir á sterkum grunni almennra viðskiptafræðigreina eins og fjármálafræði, markaðsfræði, reikningshaldi, rekstrarhagfræði og stjórnun. Námið veitir nemendum færi á að læra aðra námsgrein samhliða viðskiptafræði.

Skipulag náms

X

Rekstrarhagfræði I (VIÐ105G)

Markmið námskeiðsins er að kenna nemendum grunnatriði í hagrænni hugsun og meginkenningum í rekstrarhagfræði þannig að þeir kunni skil á helstu hugtökum og notkun. Framboð, eftirspurn og teygni. Neytendahagfræði. Markaðir, skilvirkni og velferð. Skattkerfi og áhrif skattlagningar. Ytri áhrif, samgæði og auðlindir. Ósamhverfar upplýsingar, freistnivandi og hrakval. Kostnaður við framleiðslu, samkeppni, fákeppni, einokun. Vinnumarkaður, mismunun og tekjuskipting. Verkaskipting og verslun.

X

Vinnulag í viðskiptafræði (VIÐ157G)

Í námskeiðinu verður fjallað um námstækni, gagnrýna hugsun, siðferði, hópavinnu, samskipti, hlustun, skriflega framsetningu og kynningu á verkefnum. Nemendur vinna einstaklings- og hópverkefni af ýmsum toga. 

Markmið námskeiðs er að veita nemendum grundvallarfærni í faglegum vinnubrögðum í viðskiptafræði; meðal annars er lögð áhersla á að nemendur öðlist leikni við úrvinnslu heimilda.

X

Stærðfræði A (VIÐ102G)

Mikilvæg atriði úr námsefni framhaldsskóla rifjuð upp. Línuleg og ólínuleg föll. Prósentureikningur og grunnatriði í fjármálastærðfræði. Diffrun og hlutdiffrun. Hámörkun og lágmörkun með og án hliðarskilyrða, aðferð Lagrange.  Heildun. Undirstöðuatriði fylkjareiknings.

X

Inngangur að markaðsfræði (VIÐ101G)

Viðfangsefni námskeiðs eru markaðshugtakið, markaðsáherslur og tengsl markaðsfræðinnar við stjórnun og stefnumótun. Einnig er fjallað um greiningu á markaðsumhverfinu, greiningu á kauphegðun, stefnumótun markaðsmála, samkeppni og samkeppnisforskot. Að síðustu er fjallað um með hvaða hætti á að útfæra markaðsstarf svo árangur náist. Gert er ráð fyrir virkri þátttöku nemenda í fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu.

X

Inngangur að fjárhagsbókhaldi (VIÐ103G)

Námskeiðinu er ætlað að gera nemendur þokkalega læsa á ársreikninga hlutafélaga. Eðli og tilgangur fjárhagsbókhalds og reikningsskila verða í forgrunni. Kynntar verða þær meginforsendur og grundvallarreglur er reikningsskil byggja á. Sérstök áhersla verður lögð á samhengið milli einstakra kafla í ársreikningnum.
Stefnt er að því að nemendur geti greint mikilvægar upplýsingar í ársreikningi hlutafélags og túlkað þær fyrir þeim sem þurfa á þessum upplýsingum að halda.

X

Tölfræði A (VIÐ263G)

Markmið námskeiðsins er að byggja traustan grunn undir notkun tölfræði í öðrum námskeiðum, í starfi og í daglegu lífi, og að gera nemendur talnagleggri. Efni: Lýsandi tölfræði. Líkindafræði: atburðir, líkur, hendingar, helstu dreifingar. Ályktunartölfræði. matsaðferðir, tölfræðileg próf. Línulegt aðhvarf.

X

Rekstrarbókhald (VIÐ204G)

Kynning á rekstrarbókhaldi. Kynnt verða fjölmörg kostnaðarhugtök og kostnaðargreining (núllpunktsgreining). Farið yfir helstu aðferðir við bókun framleiðslukostnaðar og skiptingu óbeins kostnaðar. Munurinn á rekstrarreikningi út frá aðferð fjárhagsbókhalds og með framlegðarútreikningi. Áætlanagerð, staðalbókhald og frávikagreining. Frammistöðumat deilda og afurða og skipting kostnaðar. Að námskeiðinu loknu eiga nemendur að hafa góðan skilning á mikilvægi rekstrarbókhalds við ákvarðanatöku um rekstur fyrirtækja.

X

Inngangur að stjórnun (VIÐ258G)

Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur kynnist grundvallar hugtökum, kenningum og aðferðum í stjórnun og forystu fyrirtækja og stofnana. Nálgunin og sjónarhornið er út frá viðfangsefnum og hlutverkum stjórnenda og stjórnun mannauðsins.

Nýttir verða fjölbreyttir kennsluhættir; fyrirlestrar, umræður, verkefnavinna,  þar sem leitast er við að ýta undir áhuga, vikni og þátttöku nemenda.

X

Markaðsfærsla þjónustu (VIÐ205G)

Fjallað er um eðli og eiginleika þjónustu, þjónustuþríhyrninginn, þjónustugapið, kauphegðun í þjónustu, væntingar og skynjun ásamt mikilvægi þess að byggja upp varanlegt samband við réttan hóp viðskiptavina. Einnig er fjallað um hönnun þjónustu, staðla og viðmið, umgjörð þjónustu, hlutverk viðskiptavinar í árangursríkri þjónustuframkvæmd, hlutverk starfsfólks í árangursríkri þjónustuframkvæmd, jafnvægi framboðs og eftirspurnar þegar þjónusta er annars vegar, verðlagningu og hvað ber að hafa í huga þegar mótuð er kynningarstefna fyrir þjónustulausnir. Gert er ráð fyrir virkri þátttöku nemenda í fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu.

X

UI - tölvunotkun og töflureiknir (VIÐ201G)

Námskeiðinu er skipt í verklegan- og fræðilegan hluta.

Í verklegum hluta verður farið yfir helstu þætti Excel með áherslu á fjármálaútreikninga, gerð rekstrarlíkana og úrvinnsla gagna. Farið verður yfir hagnýt verkefni sem ætla má að komi nemendum að gagni í öðrum greinum námsins og í starfi síðar meir.

Í fræðilegum hluta verður leitast við að gefa nemendum yfirsýn yfir tölvunotkun í fyrirtækjum, innsýn í fræðilegar hliðar tölvunotkunar og þá þætti sem máli skipta í fjárfestingu og rekstri tölvukerfa.

Í námskeiðinu er gert ráð fyrir að nemendur hafi tölvu og þekkingu á notkun stýrikerfis.

X

Inngangur að alþjóðaviðskiptum (VIÐ303G)

 Fjallað er um helstu kenningar í alþjóðaviðskiptum, umhverfi og þróun. Þá er fjallað um áhrif menningar í alþjóðlegum viðskiptum, alþjóðlega mannauðsstjórnun, erlenda fjárfestingu og staðsetningu framleiðslu. Fjallað er um mögulegar leiðir við alþjóðavæðingu fyrirtækja, kosti þess og galla fyrir fyrirtæki að hafa starfsemi erlendis, útrás íslenskra fyrirtækja og hvað má læra af sögunni, skipulag alþjóðlegs rekstrar, alþjóðlega markaðssetningu og þróunarstarf, alþjóðlegt samstarf og stjórnun. Þá verður fjallað um hvernig kreppur hafa áhrif á rekstur sem og heimsfaraldur á borð við Covid 19.

X

Fjármál I (VIÐ301G)

Markmið með námskeiðunum Fjármál I og Fjármál II er að nemendur tileinki sér:
* Aðferðir að meta gildi einfaldra fjármálagerninga á mismunandi tíma; að reikna til núvirðis mismunandi fjárstrauma peningalegra eigna, verkefna og fastafjármuna.
* Tækni, við fjármálastjórn og áætlanagerð fyrirtækja.
* Aðferðir, sem fjármálafræði býr yfir, þegar leitað er lausna á torveldum viðfangsefnum.

X

Lögfræði A - almenn viðskiptalögfræði (VIÐ302G)

Í námskeiðinu er farið yfir atriði í íslenskri lögfræði m.a. helstu réttarheimildir, uppbyggingu á íslensku réttarkerfi og stjórnsýslu. Þá verður farið yfir réttarsvið sem horfa ber til í daglegum viðskiptum.

Tilgangur námskeiðsins er að undirbúa nemendur undir viðfangsefni sem líkleg eru til þess að verða á vegi þeirra í störfum í viðskiptalífinu. Lögð er áhersla að nemendur fái kynningu á lögfræðinni til að geta betur greint lögfræðileg úrlausnarefni og tekið á þeim áður en þau verða að lögfræðilegum vandamálum.

Helstu viðfangsefni til umfjöllunar eru: Réttarheimildir, stjórnsýsluréttur, samningar, tilurð þeirra, túlkun og gildi, helstu reglur um lausfjárkaup og úrræði samningsaðila vegna galla og annarra vanefnda ásamt fullnustugerðum. Fjallað verður um gjaldþrotaskipti, kröfurétt, félaga- og samkeppnisrétt og persónuvernd.

X

Tölfræði B (VIÐ311G)

Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur verði vel undirbúnir fyrir notkun tölfræðilegra aðferða í starfi og í öðrum námskeiðum. Lögð er áhersla á að nemendur nái góðum tökum á notkun Excel við tölfræðilega útreikninga. Nemendur öðlist skilning á tölfræði, fyrir líf og starf. Nemendur þjálfist í að draga skynsamlegar ályktanir af upplýsingum m.a. að alhæfa mun minna út frá litlu og skekktu úrtaki. Nemendur þjálfist í að taka tillit til hendingarkenndra (óvissra) stærða við ákvarðanir.
Í námskeiðinu er viðfangsefnið einvíð aðhvarfsgreining, margvíð aðhvarfsgreining viðbótarefni í aðhvarfsgreiningu, tímaraðagreining og spálíkön, stikalaus próf, gæði mats, dreifigreining og úrtaksfræði.

X

Stjórnun og skipulagsheildir (VIÐ415G)

Markmiðið er að nemendur öðlist þekkingu og skilning á því hvað skipulagsheild er og á því umhverfi sem skipulagsheildir starfa í. Fjallað er um hagsmunaaðila og hvernig má auka líkurnar á því að ná árangri og virðisauka í rekstri skipulagsheilda. Farið er yfir áhrifaþætti og áskoranir er varða hönnun skipu­­lags og siðferðislegar og samfélagslegar áskoranir. Komið er inn á hvernig ýmsar breytingar og þróun geta haft áhrif á ákvarðanatöku, skipu­lag, stefnu, starfsfólk og menningu. Einnig  er fjallað um umbreyt­ingar og líftíma skipu­lags­heilda, sem og ágreining og völd. Þá verður getið um áhrif gervigreindar á skipulag og starfshætti skipulagsheilda.

X

Fjármál II (VIÐ402G)

Góðir stjórnarhættir og sérstaklega vönduð fjármálastjórnun hafa úrslitaáhrif á  rekstrarárangur fyrirtækja. Fjármál II er framhald af Fjármálum I þar sem meginviðfangsefnið er fyrirtækið sjálft og hvernig það er rekið í fjármálalegu tilliti.  Þá er farið yfir hvað eru góðir stjórnarhættir, hvernig hvatarnir liggja innan fyrirtækja og hvaða áhrif þeir kunna að hafa á fjárhagslega afkomu félagsins.  Meginviðfangsefni námskeiðsins er fjármálastjórnun, þ.e. fjármagnsskipan félagsins, skammtíma fjármögnun og langtímafjármögnun, gerð fjármögnunaráætlana, arðgreiðslur til hluthafa,  fjárfestingarákvarðanir félagsins, hlutskipti og hegðan þess á fjármálamarkaðnum sjálfum.  Þá verður einnig farið yfir þær ákvarðanir sem stjórnendur standa frammi fyrir þegar verulegir fjárhagserfiðleikar eiga sér stað.

X

Rekstrarstjórnun (VIÐ404G)

Rekstrarstjórnun. Líkanagerð. Skipulag framleiðslu. Samkeppnisstaða. Framleiðni. Þróun afurða. Afkastageta. Verksmiðjustaðsetning. Val á rekstrarkerfi. Eiginleikar mismunandi framleiðslukerfa; samfellt flæði, verkstæði, seríuframleiðsla, blanda kerfi, framleiðslulína háð vél, framleiðslulína háð starfsmanni, þjónustuverkstæði, fjöldaþjónusta og þjónusta sérfræðinga. Verksmiðjuskipulagning. Skipulagning vinnustöðva. Vinnurannsóknir. Markmið námskeiðsins er að kenna nemendum að nota ýmis líkön til að bæta rekstur framleiðslufyrirtækja. Nemendur fá þjálfun í að nota líkönin og er lögð áhersla á notkun EXCEL. Nemendur leysa verkefni,sem eru kynnt og rædd í tímum.

X

BS ritgerð (VIÐ264L)

Nemandinn fjallar um fyrirfram ákveðið efni á fræðasviðinu, reifar það og útskýrir og greinir frá kenningalegum bakgrunni, beitingu og álitamálum sem tengjast því. Um er að ræða heimildaritgerð þar sem unnið er með fyrirliggjandi gögn. Lengd 6-8 þúsund orð.

Sjá upplýsingar um umsókn um leiðbeinanda úr hópi fastra kennara Viðskiptafræðideildar og ritgerðaskil í Kennsluskrá í kafla undir "Upplýsingar" - "Lokaritgerðir". Í samráði við leiðbeinanda gera nemendur rannsóknaráætlun og vinna lokaritgerð samkvæmt henni. Ritgerð skal skilað rafrænt í samræmi við auglýsingu þar að lútandi hverju sinni. Heimilt er að prófa stúdent munnlega úr efni ritgerðar og meta frammistöðu hans sem hluta af einkunn.

X

Lestur og greining ársreikninga (VIÐ626G)

Lestur og greining ársreikninga er grunnur að skilvirkri ákvarðanatöku og kemur að ýmsum atriðum í rekstri fyrirtækja. Tilgangur námskeiðsins er að bæta færni nemenda í lestri sem og greiningu ársreikninga út frá ýmsum forsendum. 

Um getur verið að ræða ákvörðun sem snýr að fjárfestingu, lánveitingu sem og samanburðargreiningu milli félaga og takmörkunum slíks samanburðar. 

Oft eru félög í umbreytingarferli sem gerir það að verkum að engan veginn er nægilegt að skoða einfalda breytingu á rekstrarniðurstöðu milli tveggja ára og draga af því miklar ályktanir. Námskeiðið mun auka færni nemenda í að átta sig á því hvaða liðir skipta máli út frá mismunandi greiningum. 

Í námskeiðinu er stuðst við kennslubók og raunveruleg gögn skráðra hlutafélaga á Aðallista Kauphallarinnar og í einhverjum tilvikum erlend skráð félög. Slíkt kennsluform nýtist nemendum vel og sýnir efnistök og aðferðarfræði í raunverulegum aðstæðum.

Farið verður yfir tengingu verðmata við gögn úr ársreikningum sem og lánaákvarðanir og til hvaða atriða er horft þar, meðal annars út frá sjónarhorni lánanefnda fjármálastofnana.  Báðir þessir liðir taka til fjármögnunar félaga.  Einnig verður farið yfir greiningu á nýtingu fjármuna félaga og frásögn þeirrar nýtingar og framsetningu eignamats eigna í efnahagsreikningum. Þá verður skoðuð framsetning á upplýsingum innan uppgjöra, miðuð við raunveruleg fyrirtæki, hvort sem um er að ræða efnahagsreikninga, rekstrarreikninga og eða sjóðstreymi félaga og ekki síst tenging þessara upplýsinga við skýringar uppgjöra sem sífellt eru að verða umfangsmeiri.

X

Viðskiptaáætlanir (VIÐ528G)

Námskeiðið veitir nemendum þekkingu og reynslu í gerð viðskiptaáætlana sem tekur á öllum þeim þáttum sem nemendur hafa lært í námi sínu og nýtist þeim afar vel þegar út í atvinnulífið er komið. Þá ýtir námskeiðið undir hæfni nemenda til þess að skapa nýja hluti og jafnvel störf í samfélaginu, stofni þeir til eigin rekstrar. Nemendur fá þjálfun í að standa að baki og kynna eigin hugmyndir líkt og um fjárfesta væri að ræða. Viðskiptaáætlun og rekstrarlíkan er skjal þar sem markmið fyrirtækis eru sett fram og rökstudd með tölulegum gögnum og staðreyndum.  Viðskiptaáætlun á einnig að sýna fram á hvernig ná á markmiðum með aðgerðum er snúa að tekjuöflun, kostnaði, innri ferlum og starfsfólki. 

Viðskiptaáætlanir eru líka mjög mikilvægur þáttur fyrir aðila sem koma að fjármögnun fyrirtækja, hvort sem það eru fjármálastofnanir eða fjárfestar, þar sem slíkar áætlanir eiga að innihalda flestar þær upplýsingar sem þeir aðilar þurfa til að átta sig á því í hverju þeir eru að fjárfesta og áhættuna samhliða fjárfestingunni.

Markmið námskeiðsins er nemendur geti skapað og unnið með eigin viðskiptahugmyndir og lagt fram viðskiptaáætlanir í samhengi við t.d stefnumótun fyrirtækja.

Öll fög eru skyldufög nemaVValfagBBundið val er háð skilyrðum ENámskeiðið er ekki kennt á misserinuNámsleiðin í Kennsluskrá

Hvað segja nemendur?

Auður Elísabet Guðrúnardóttir
Júlía Rut Kristjánsdóttir
Guðjón Gunnar Valtýsson Thors
Auður Elísabet Guðrúnardóttir
BS í viðskiptafræði

Ég mætti á Háskóladaginn óviss um hvað ég vildi læra. Það sem heillaði mig mest við viðskiptafræðina var hversu fjölbreytt námið er og að gráðan myndi nýtast mér í starfi bæði á Íslandi og erlendis. Námið var virkilega skemmtilegt en á sama tíma krefjandi og lærdómsríkt. Það kom mér á óvart hversu samheldinn hópurinn var í gegnum námið og aðgengi nemenda að kennurum er til fyrirmyndar. Vísindaferðir á vegum Mágusar gáfu mér tækifæri til að kynnast fjölmörgum fyrirtækjum sem hjálpaði til við að móta þá stefnu sem ég vildi taka að loknu námi. Ég var kjörin forseti viðskiptafræðinema á Norðurlöndunum sem leiddi mig í skiptinám til Finnlands en ég mæli eindregið með að nemendur við deildina nýti sér þau einstöku tækifæri til skiptináms sem þeim bjóðast. Viðskiptafræðin er grunnþekking fyrir lífið og er ég viss um að námið komi til með að nýtast mér bæði í starfi og fjölskyldulífi.

Júlía Rut Kristjánsdóttir
BS í viðskiptafræði

Þegar ég ákvað að fara í háskóla fékk ég valkvíða, því það er gríðarlegt framboð af spennandi námi í boði. Mér hefur alltaf þótt gaman að læra og áhugasvið mín mörg. Viðskiptafræðin varð fyrir valinu þar sem mér fannst hún fjölbreytt og tengjast öðrum sviðum, sem heillaði mig. Viðskiptafræði hefur gefið og kennt mér ótrúlega margt og þá ekki einungis námslega. Ég hef kynnst fjölbreyttum hópi fólks, lært viðburðastjórnun í gegnum störf mín hjá Mágusi, stækkað tengslanetið mitt og svo lengi mætti telja. Ég fór í nýnemaferð Mágusar eftir nýnemakynninguna fyrsta daginn minn og fann þá strax að þarna ætti ég heima. Ég held ég gæti ekki verið ánægðari með val mitt í dag og sé fram á að þessi gráða muni nýtast mér vel bæði í atvinnulífinu sem og hversdags lífinu.

Guðjón Gunnar Valtýsson Thors
BS í viðskiptafræði

Degi fyrir nýnemadag Háskólans skipti ég um námsleið yfir í viðskiptafræðina og get ég sagt með fullu öryggi að það hafi verið besta ákvörðun sem ég hef tekið á lífsleiðinni. Ég hef í rauninni ekki einn slæman hlut um viðskiptafræðinámið að segja. Námið er bæði áhugavert og spennandi. Það sem heillaði mig er að það tengist daglega lífinu beint og óbeint. Mín sýn á sjónvarpsauglýsingum breyttist strax eftir fyrstu vikurnar og mér fannst mjög fróðlegt að kynnast fræðunum á bakvið margt sem þú sérð í hinu daglega lífi. Námið er ótrúlega fjölbreytt, ekki síst vegna þess að hægt er leggja áherslur á mismunandi kjörsvið eftir þínu áhugasviði. Það sem kom mér mikið á óvart var samheldnin í hópnum og hvað áfangarnir voru skemmtilegir. Ekki er hægt að tala um viðskiptafræðina án þess að lofsyngja Mágus, nemendafélag viðskiptafræðinema við Háskóla Íslands. Allar vísindaferðirnar, partý og samkomur sem Mágus stendur fyrir hafa gefið mér bæði ógleymanlegar minningar en einnig vinabönd og tengslanet sem munu hiklaust hjálpa mér í viðskiptalífinu á næstu áratugum.

Hafðu samband

Nemenda- og kennsluþjónusta Félagsvísindasviðs er á
Þjónustutorgi í Gimli
s. 525 4500 
Netfang: nemFVS@hi.is

Opið virka daga frá 09:00 - 15:00 
Gimli - Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík

Bóka viðtal við nemenda- og kennsluþjónustu Félagsvísindasviðs

Viðskiptafræðideild á samfélagsmiðlum

 Instagram    Facebook

""

Hjálplegt efni

Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.