Skip to main content

Xiaolu Guo í Reykjavík: Að þýða menningu

Xiaolu Guo í Reykjavík: Að þýða menningu - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
28. ágúst 2018 19:30 til 22:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Fyrirlestrarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Kínversk-breski listamaðurinn, rithöfundurinn og kvikmyndagerðarkonan Xiaolu Guo heldur fyrirlestur þriðjudaginn 28. ágúst í Veröld - húsi Vigdísar. Uppvaxtarsaga hennar, Einu sinni var í austri, kom út hjá Angústúru fyrir tæpu ári síðan í þýðingu Ingunnar Snædal, og hefur heillað íslenska lesendur. Að fyrirlestrinum og umræðum loknum verður sýnd heimildarmyndin We Went to Wonderland sem Xiaolu Guo gerði um heimsókn foreldra sinna til Evrópu.

Fyrirlestur Xiaolu Guo er fyrsti viðburðurinn í fyrirlestraröðinni „Menning, tungumál, þýðingar“ á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur.

Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. 

Xiaolu Guo í Reykjavík: Að þýða menningu

Xiaolu Guo í Reykjavík: Að þýða menningu