Skip to main content

Workshop for PhD advisors

Workshop for PhD advisors  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
21. mars 2019 12:30 til 16:00
Hvar 

Háskólatorg

HT-300

Nánar 
Skráning
Leiðbeinendur

Námskeið og vinnustofa fyrir leiðbeinendur doktorsnema á Heilbrigðisvísindasviði í samstarfi Kennslumiðstöðvar og Miðstöðvar framhaldsnáms. Námskeiðið er á ensku.

Skráning er á heimasíðu Kennslumiðstöðvar. 

  • Námskeið 1. Rafrænt námskeið: Reglur og viðmið um doktorsnám
  • Námskeið 2. Vinnustofa: Hlutverk og samskipti leiðbeinanda og doktorsnema Rafræna námskeiðið er undanfari vinnustofunnar.

1. Reglur og viðmið um doktorsnám

Markmið rafræna námskeiðsins er að leiðbeinendur kynnist kröfum og viðmiðum sem HÍ setur fyrir doktorsnema og doktorsvarnir, ásamt hlutverki og skyldum leiðbeinanda og nema.

Námskeiðslýsing

Námskeiðið er á rafrænu formi og verður hægt að nálgast það frá og með 13. mars 2019. Þátttakendur þurfa að hafa lokið námskeiðinu áður en þeir sækja vinnustofur í námskeiði 2.

Hæfniviðmið

Að námskeiði loknu getur leiðbeinandi

  • gert grein fyrir helstu almennu reglum háskólaráðs um doktorsnám og um vörn doktorsritgerða
  • skilgreint helstu viðmið og kröfur Háskóla Íslands um gæði doktorsnáms, þar á meðal almenn, fagleg og efnisleg viðmið sinnar deildar
  • útskýrt hlutverk Miðstöðvar framhaldsnáms vegna doktorsnáms
  • lýst ferli kvartana og kærumála sem upp geta komið vegna doktorsnema

 

2. Hlutverk og samskipti leiðbeinanda og doktorsnema

Stund: 21. mars kl. 12:30-4:00 PM
Staður: Háskólatorg, HT-300

Vinnustofan er á ensku

Þátttakendur þurfa að hafa lokið námskeiði 1 til þess að fá aðgang að námskeiði 2.

Markmið námskeiðsins er að undirbúa þátttakendur undir starf leiðbeinanda doktorsnema með því að gefa innsýn inn í þá ábyrgð og skyldur sem leiðbeiningunni  fylgir.

Námskeiðslýsing
Lögð verður áhersla á grundvöll góðra samskipta og uppbyggingu trausts. Þátttakendur fá tækifæri til að ræða ýmsar hliðar þessa hlutverks og þær áskoranir sem starfinu fylgja. Þar sem námskeiðið sjálft er með styttra móti verður ekki tími til að fara yfir reglur og leiðbeiningar HÍ og hvers sviðs um doktorsnám. Því er gert ráð fyrir að þátttakendur hafi lokið rafrænu prófi úr reglum og leiðbeiningum síns sviðs og Miðstöðvar framhaldsnáms, áður en þeir mæta á námskeiðið. Auk þess þurfa þátttakendur að hafa kynnt sér námsefni fyrir námskeiðið (Lee, 2008 eða Halse, 2011). Með þessu móti nýtist námskeiðstíminn betur til umræðu og verklegra æfinga. Flutt verða stutt innleggserindi en síðan byggist námskeiðið á umræðum og æfingum. Gert er ráð fyrir að þátttakendur fjalli í sameiningu um algengar áskoranir sem leiðbeinendur mæta, s.s. ólíkar væntingar leiðbeinanda og doktorsnema, samskipti, frestiáráttu, samstarf við með-leiðbeinendur o.fl.

Hæfniviðmið

Að námskeiði loknu getur leiðbeinandi:

  • skilgreint hlutverk, skyldur og ábyrgð nemenda
  • skilgreint hlutverk, skyldur og ábyrgð leiðbeinanda
  • lýst þeim eiginleikum sem einkenna góðan leiðbeinanda í huga nemandans skv. rannsóknum
  • útskýrt hvernig best sé að setja mörk, t.d. tímamörk, vegna leiðbeiningar
  • gert grein fyrir því hvernig traust myndast milli leiðbeinanda og nemanda beitt aðferðum til að leysa ágreining

Skráning á vinnustofuna er hér á síðunni.

Markmið vinnustofunnar er að undirbúa þátttakendur fyrir starf leiðbeinanda doktorsnema með því gefa innsýn inn í þá ábyrgð og skyldur sem leiðbeiningunni fylgir. Lögð er áhersla á grundvöll góðra samskipta og uppbyggingu trausts. Þátttakendur fá tækifæri til að ræða ýmsar hliðar þessa hlutverks og þær áskoranir sem starfinu fylgja.

Að námskeiði loknu getur þátttakandi:

  • skilgreint hlutverk, skyldur og ábyrgð nemenda
  • skilgreint hlutverk, skyldur og ábyrgð leiðbeinanda
  • lýst þeim eiginleikum sem einkenna góðan leiðbeinanda í huga nemandans skv. rannsóknum
  • útskýrt hvernig best sé að setja mörk, t.d. tímamörk, vegna leiðbeiningar
  • gert grein fyrir því hvernig traust myndast milli leiðbeinanda og nemanda
  • beitt aðferðum til að leysa ágreining

 

Námskeiðið er haldið í samvinnu Kennslumiðstöðvar, Miðstöðvar framhaldsnáms og Heilbrigðisvísindasviðs

Vefnámskeið og vinnustofa fyrir leiðbeinendur doktorsnemenda.

Námskeið og vinnustofa fyrir leiðbeinendur doktorsnemenda