Vorbrautskráning Háskóla Íslands 2018
Laugardalshöll
Háskóli Íslands brautskráir kandídata úr grunn- og framhaldsnámi laugardaginn 23. júní í Laugardalshöll. Líkt og undanfarin ár verða brautskráningarathafnirnar tvær.
Á fyrri brautskráningarathöfninni, sem hefst kl. 10.30, taka kandídatar í framhaldsnámi við útskriftarskírteinum sínum. Athöfnina sækja þeir sem eru að ljúka framhaldsnámi til prófgráðu, þ.e. meistaranámi og kandídatsnámi.
Á seinni athöfninni, sem hefst kl. 14, fer fram brautskráning kandídata sem eru að ljúka grunnnámi, þ.e. BA-, B.Ed.- og BS-námi.
Prófskírteini verða afhent í röð eftir fræðasviðum: Félagsvísindasvið, Heilbrigðisvísindasvið, Hugvísindasvið, Menntavísindasvið og Verkfræði- og náttúruvísindasvið.
Kandídatar fá send rafræn bréf með nánari upplýsingum þegar nær dregur brautskráningu.
Vorbrautskráning kandídata í grunn- og framhaldsnámi frá Háskóla Íslands fer fram í Laugardalshöll 23. júní.