Skip to main content

Vinnustofa kennara: Tækni í tungumálanámi

Vinnustofa kennara: Tækni í tungumálanámi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
22. febrúar 2020 10:00 til 12:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

stofa 107

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Skúlína Hlíf Kjartansdóttir heldur vinnustofuna Tækni í tungumálanámi  í stofu 107 í Veröld - húsi Vigdísar þann 22. febrúar kl. 10-12.

Í þessari vinnustofu verður fjallað um fjölbreytta möguleika á notkun tækni í tungumálakennslu með hliðsjón af nýjum rannsóknum og tilraunum ýmissa fyrirtækja til að mæta kröfunni um nám fyrir alla og auknum tækifærum til tjáningar og sköpunar. Skoðaðir verða nokkrir þeirra möguleika sem tæknin veitir og þátttakendur eru hvattir til að taka tölvur eða spjaldtölvur með til að skoða tól og forrit sem fjallað verður um. Samveran verður með Menntabúðasniði og stefnt að því að þátttakendur deili reynslu sín á milli og á neti, sem gæti orðið til stuðnings síðar meir í námi og kennslu. 

Vinnustofan er þátttakendum að kostnaðarlausu og engrar skráningar er krafist. Boðið verður upp á kaffiveitingar.

Vinnustofur kennara eru samstarfsverkefni Vigdísarstofnunar, STÍL – Samtaka tungumálakennara á Íslandi og Tungumálamiðstöðvar Háskóla Íslands. 

facebook

Vinnustofa kennara: Tækni í tungumálanámi

Vinnustofa kennara: Tækni í tungumálanámi