Skip to main content

Vinnustofa kennara: Starfendarannsóknir í tungumálakennslu – kynning á ACR verkefninu

Vinnustofa kennara: Starfendarannsóknir í tungumálakennslu – kynning á ACR verkefninu - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
18. september 2021 10:00 til 11:30
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

007

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Vinnustofa kennara: Starfendarannsóknir í tungumálakennslu – kynning á verkefninu Action research communities for language teachers

Leiðbeinendur: Brynhildur Anna Ragnarsdóttir og Þórhildur Oddsdóttir
18. september kl. 10:00-11:30
Veröld – hús Vigdísar, stofa 107

ARC verkefnið (Action research communities for language teachers) byggir á þeirri sannfæringu að kennarar séu kjarninn í því ferli sem á sér stað í tungumálakennslunni. Verkefninu er ætlað að styðja kennara í evrópskum skólum við að nýta sér starfendarannsóknir til að þróa í starfi sínu ígrundun á þeim starfsháttum sem fram fara í kennslustofunni. Lögð er áhersla á aðferðir sem efla fagmennsku þeirra og sjálfstraust.

Sérhver kennari getur orðið rannsakandi á eigin starfsháttum og ígrundun á þeim. Kennarar verða að geta horft gagnrýnum augum á eigin kennslu, umhverfið, þátttöku nemenda og sjálfa sig. Kennsluhættir þróast einungis með síendurtekinni greiningu.

Vinnustofan er öllum opin og skráningar er ekki krafist. Boðið er upp á kaffiveitingar að lokinni vinnustofu.

Vinnustofan er haldin í samstarfi STÍL og Vigdísarstofnunar. 

facebook

Vinnustofur kennarar haustið 2021

Vinnustofa kennara: Starfendarannsóknir í tungumálakennslu – kynning á verkefninu Action research communities for language teachers Leiðbeinendur: Brynhildur Anna Ragnarsdóttir og Þórhildur Oddsdóttir

Vinnustofa kennara: Starfendarannsóknir í tungumálakennslu – kynning á ACR verkefninu