Skip to main content

Vinnustofa kennara: Samvinnunám, námsorðaforði og ritun

Vinnustofa kennara: Samvinnunám, námsorðaforði og ritun - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
21. mars 2020 10:00 til 12:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Stofa 107

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Hulda Karen Daníelsdóttir, sérfræðingur í íslensku sem öðru tungumáli (ÍSAT), heldur vinnustofuna Samvinnunám, námsorðaforði og ritun í stofu 107 í Veröld - húsi Vigdísar þann 21. mars kl. 10-12.

Þátttakendur fræðast um og fá þjálfun í samvinnunámsleiðum, flokkun námsorðaforða og ritun fjölbreytts texta.

Hulda Karen lauk MA-gráðu í annarsmálsfræðum frá University of Manitoba í Kanada og hefur starfað sem ÍSAT sérfræðingur undanfarin ár. 

Vinnustofan er þátttakendum að kostnaðarlausu og engrar skráningar er krafist. Boðið verður upp á kaffiveitingar.

Vinnustofur kennara eru samstarfsverkefni Vigdísarstofnunar, STÍL – Samtaka tungumálakennara á Íslandi og Tungumálamiðstöðvar Háskóla Íslands. 

facebook

Vinnustofa kennara: Samvinnunám, námorðaforði og ritun

Vinnustofa kennara: Samvinnunám, námorðaforði og ritun