Skip to main content

Vinnustofa fyrir leiðbeinendur doktorsnema með Mary Codd

Vinnustofa fyrir leiðbeinendur doktorsnema með Mary Codd - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
14. júní 2019 9:00 til 13:00
Hvar 

Háskólatorg

Litla Torg

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands býður upp á vinnustofu fyrir leiðbeinendur doktorsnema undir heitinu Effective Teaching of  Knowledge and Skills for Research in the Health Sciences:  An Interactive Workshop for Research Supervisors

Umsjón með vinnustofunni hefur Mary Codd, MD, MPH, D.Stats, FFPHMI, PhD (faralds- og líftölfræði), dósent í faraldsfræði og líftölfræði við University College Dublin.

Mary Codd hefur haldið fjölda sambærilegra námskeiða og vinnustofa sem hafa ekki aðeins þótt fræðandi heldur hvetjandi og til þess fallin að vekja þátttakendur til umhugsunar um hlutverk sitt og aðferðir við áhrifaríka leiðsögn. Vinnustofan er með gagnvirku sniði og fá leiðbeinendur doktorsnema m.a. tækifæri til að leggja af mörkum og læra af reynslu hvers annars.

Ungir verðandi leiðbeinendur doktorsnema eru sérstaklega hvattir til þess að nýta sér þetta tækifæri ásamt þeim sem eldri og reyndari eru.

Sjáumst öll á Háskólatorgi (Litla torg)  föstudaginn 14. júní kl. 9:00 en vinnustofan stendur til kl. 13.

Þátttakendur þurfa að hafa fartölvur sínar með sér í vinnustofuna. VINSAMLEGA SKRÁIÐ ÞÁTTTÖKU

Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands býður upp á vinnustofu í umsjón Mary Codd, fyrir leiðbeinendur doktorsnema undir heitinu Effective Teaching of  Knowledge and Skills for Research in the Health Sciences:  An Interactive Workshop for Research Supervisors

Vinnustofa fyrir leiðbeinendur doktorsnema með Mary Codd