Verkefnavaka HÍ í Þjóðarbókhlöðu
Hvenær
21. mars 2019 19:00 til 23:00
Hvar
Þjóðarbókhlaðan
Nánar
Aðgangur ókeypis
Fjölbreytt dagskrá fyrir alla nemendur HÍ. Ýmiss konar aðstoð við fræðileg skrif, vinnustofur, fræðsla, og andleg og líkamleg næring.
Á verkefnavöku HÍ geta nemendur sem eru að vinna að skriflegum verkefnum, t.d. lokaritgerð, sótt fræðslu, upplýsingar, stuðning og aðstoð.
Dagskránna er að finna á vef Landsbókasafnsins.
Að Verkefnavökunni sem haldin er í Þjóðarbókhlöðunni á hverju vormisseri standa Náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands, ritver og bókasafn Menntavísindasviðs, ritver Hugvísindasviðs, Heilbrigðisvísindabókasafn LSH og HÍ og Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.
Á verkefnavöku HÍ geta nemendur sem eru að vinna að skriflegum verkefnum, t.d. lokaritgerð, sótt fræðslu, upplýsingar, stuðning og aðstoð.