Umbylting háskólanáms
Veröld - Hús Vigdísar
VHV-023
Stórar breytingar gætu verið væntanlegar þegar kemur að námsmöguleikum nemenda og skipulagi háskólanáms Háskóla Íslands. Háskólinn er einn níu háskóla innan Aurora samstarfsnetsins sem vinnur nú að umsókn að European Universities Network. En hvað þýðir það fyrir Háskóla Íslands? Hvaða tækifæri verða í boði? Eru mögulegar hindranir framundan? Er um að ræða eina stærstu umbyltingu sem orðið hefur á háskólanámi eins og við þekkjum það?
Viðburðurinn hefst kl. 12:30 í Veröld - húsi Vigdísar. Eftir þrjár örkynningar taka við panel umræður. Viðburðurinn stendur til kl. 14:00 og er opinn öllum með húsrúm leyfir.
Örkynningar:
Elísabet Brynjarsdóttir, forseti Stúdentaráðs Aurora
Steinunn Gestsdóttir, aðstoðarrektor kennslumála og þróunar
Magnús Torfason, lektor og sérfræðingur HÍ í kjarnahóp Aurora fyrir EUN
Panel umræður:
Elísabet Brynjarsdóttir, forseti Stúdentaráðs Aurora
Halldór Jónsson, sviðsstjóri vísinda- og nýsköpunarsviðs
Sigrún Jónsdóttir, forseti LÍS
Una Strand Viðarsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu mennta- og vísindamála Mennta- og menningarmálaráðuneytisins
Fundarstýra er Kolfinna Tómasdóttir, alþjóðafulltrúi Stúdentaráðs Háskóla Íslands.
Stórar breytingar gætu verið væntanlegar þegar kemur að námsmöguleikum nemenda og skipulagi háskólanáms Háskóla Íslands. Háskólinn er einn níu háskóla innan Aurora samstarfsnetsins sem vinnur nú að umsókn að European Universities Network.