Skip to main content

Um ritmiðillinn Rilke, Minnisblöð Maltes Laurids Brigge og ósjálfráð skrif

Um ritmiðillinn Rilke, Minnisblöð Maltes Laurids Brigge og ósjálfráð skrif - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
9. mars 2021 12:00 til 12:30
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Benedikt Hjartarson, prófessor í bókmenntafræði við Háskóla Íslands, heldur fyrirlesturinn "„Sá dagur mun koma að hönd mín verður mér fjarlæg": Um ritmiðillinn Rilke, Minnisblöð Maltes Laurids Brigge og ósjálfráð skrif".

Í erindinu er fjallað um verk austurrísk-ungverska skáldsins Rainers Marias Rilke, tengsl þeirra við hefð spíritisma og ósjálfráð skrif. Í brennidepli er eina skáldsaga Rilkes, Minnisblöð Maltes Laurids Brigge frá árinu 1910. Um leið er hugað að hlutverki spíritisma og annarra dulspekistrauma við mótun framsækinna nútímabókmennta á öndverðri tuttugustu öld. 

Fyrirlesturinn birtist á facebook síðu Vigdísarstofnunar þann 9. mars.

Þriðjudagsfyrirlestrar Vigdísarstofnunar

Facebook

„Sá dagur mun koma að hönd mín verður mér fjarlæg": Um ritmiðillinn Rilke, Minnisblöð Maltes Laurids Brigge og ósjálfráð skrif

Um ritmiðillinn Rilke, Minnisblöð Maltes Laurids Brigge og ósjálfráð skrif