Þróun hönnunarhugsunar og beiting hennar innan íslenskra fyrirtækja og stjórnsýslu
Háskólatorg
HT101
Útgáfuboð og málstofa í tilefni af útkomu 1. tbl. 16. árg. Tímarits um viðskipti og efnahagsmál (www.efnahagsmal.is) verður haldið föstudaginn 21. júní, kl. 12.00-13.00, í stofu 101 á Háskólatorgi (Ingjaldsstofa), í Háskóla Íslands.
Útgáfuboðið er unnið í samstarfi við Hönnunarmiðstöð. Rýnt verður í hönnunarhugsun og hvernig þessari aðferð hefur verið beitt innan íslenskra fyrirtækja og stjórnsýslu. Hönnunarhugsun er aðferðafræði sem hefur að undanförnu verið að ryðja sér til rúms innan þróunarverkefna á Íslandi. Frummælendur rekja sögu hennar og hvaða hlutverki hún gæti þjónað í framtíðar stefnumótun og viðskiptaháttum. Fyrirspurnir og umræður verða að erindum loknum. Léttar veitingar í boði og allir velkomnir.
Dagskrá fyrir málstofuna:
12.00 – Gylfi Zoega, formaður ritstjórnar TVE, býður gesti velkomna
12.05 – Ingibjörg Rafnar Pétursdóttir og Magnús Þór Torfason, höfundar greinarinnar Þróun hönnunarhugsunar og beiting hennar innan íslenskra fyrirtækja og stjórnsýslu
12.15 – Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, deildarstjóri Þjónustu- og þróunardeildar, Borgarbókasafni
12.23 – Karl Guðmundsson, Forstöðumaður útflutnings, Íslandsstofu
12.30 – Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar, tekur saman
12.35-13.00 – Spurningar úr sal
Útgáfuboð og málstofa í tilefni af útkomu 1. tbl. 16. árg. Tímarits um viðskipti og efnahagsmál (www.efnahagsmal.is) verður haldið föstudaginn 21. júní, kl. 12.00-13.00, í stofu 101 á Háskólatorgi (Ingjaldsstofa), í Háskóla Íslands.