Skip to main content

Þriðja vinnustofa European Language Resource Coordination (ELRC) á Íslandi

Þriðja vinnustofa European Language Resource Coordination (ELRC) á Íslandi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
8. desember 2022 9:30 til 14:40
Hvar 

Stapi

Stofa 210

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Máltæknin mótar margtyngda framtíð. Hún hefur þegar breytt því hvernig við notum tækin okkar, eigum í samskiptum, kaupum inn í búðum og ferðumst. Hún endurmótar stöðugt hvernig við nýtum okkur þjónustu, bæði á vegum fyrirtækja og hins opinbera. Forrit sem leiðrétta sjálfkrafa stafsetningarvillur og aðstoða við að skrifa áferðarfallegan texta, stafrænn hjálparbúnaður í farsímum sem breytir töluðu máli í ritað, vélmenni sem svara þegar við hringjum í bankann eða opinberar stofnanir, kerfi sem þýða sjálfvirkt úr erlendu tungumáli og margt annað; allt eykur þetta möguleikana í okkar daglega lífi, fyrirtækjarekstri og stjórnsýslu. En getum við fyllilega notað okkar eigið tungumál í stafrænum samskiptum? Fær tungumálið nægan stuðning og hefur það getuna til að halda í við tækniframfarir á gervigreindaröld? 

Þriðja vinnustofa European Language Resource Coordination (ELRC) mun fjalla um þessi mál og hvetja til frjórrar umræðu um stöðu og framtíðarhorfur íslenskrar máltækni. Þróunaraðilar, hugbúnaðarfyrirtæki og notendur máltækni, bæði úr einkageiranum og opinbera geiranum, deila reynslu sinni, ræða hvaða kröfur þarf að uppfylla og hvaða leiðir eru færar til að umbreyta stafrænum samskiptum í margtyngdri Evrópu, með því að nýta sér máltæknina. Að lokum verður rætt hvernig málleg gögn texta og tals geta ýtt undir þróun gervigreindar.

ELRC-vinnustofan er ókeypis viðburður, en skráningar er krafist. Smelltu hér til að skrá þig á vefsíðu ELRC.