Þjóðlög með austrænum áhrifum á Háskólatónleikum
Hvenær
25. september 2019 12:30 til 13:00
Hvar
Háskólatorg
Litla torg
Nánar
Aðgangur ókeypis
Á Háskólatónleikum 25. september, sem fram fara á Litla torgi Háskólatorgs, flytur þjóðlagasextett Ásgeirs Ásgeirssonar íslensk þjóðlög í útsetningum með austrænum áhrifum.
Sextettinn skipa Ásgeir Ásgeirsson sem leikur ýmis strengjahljóðfæri, Haukur Gröndal á klarínett, Matti Kallio á harmóníku, Þorgrímur Jónsson á kontrabassa, Erik Qvick á slagverk og Sigríður Thorlacius sem sér um sönginn.
Tónleikarnir hefjast kl. 12.30. Enginn aðgangseyrir og allir eru velkomnir.
Á Háskólatónleikum 25. september, sem fram fara á Litla torgi Háskólatorgs, flytur þjóðlagasextett Ásgeirs Ásgeirssonar íslensk þjóðlög í útsetningum með austrænum áhrifum.