Þekking til sölu? Háskólar í fremstu röð - markaðsvæðing sem ýtir undir kynjamisrétti?
Íslensk erfðagreining
Er þekking söluvara? Eru háskólar reknir eins og smjörlíkisverksmiðjur? Er menntun einkahagsmunir eða almannahagsmunir? Eru nemendur neytendur á markaði?
Þessum spurningum og fleirum verður velt upp í fundaröðinni Þekking til sölu? Markaðsvæðing akademíunnar.
Finnborg Salome Steinþórsdóttir, nýdoktor í kynjafræði við Háskóla Íslands heldur fyrirlestur 6. desember kl. 12-13 í sal Íslenskrar erfðagreiningar.
Alþjóðavæðing, samkeppni og árangursmælikvarðar eru hluti af stjórnun og fjármögnun háskóla nú til dags. Í háskóla og vísindasamfélaginu er notast við alls konar kerfi til að ná framúrskarandi árangri. Hvað er „framúrskarandi árangur“? Hvaða viðmið eru ríkjandi í þessum kerfum? Hvernig rýma þau við stefnur og markmið um jafnrétti? Staða kvenna og karla íháskólasamfélaginu hefur breyst umtalsvert á síðastliðnum áratugum, en kynjaójafnrétti þrífst enn innan veggja þess. Í erindinu verður farið yfir hvernig markaðsvæðing háskóla stuðlar að og viðheldur kynjamisrétti.
Að fundaröðinni standa MARK, miðstöð margbreytileika- og kynjarannsókna, RannMennt, rannsóknastofa um menntastefnu, alþjóðavæðingu og félagslegt réttlæti og ReykjavíkurAkademían. Fyrirlestraröðin er styrkt af rektorsskrifstofu Háskóla Íslands, Félagsvísindasviði og Menntavísindasviði.
Finnborg Salome Steinþórsdóttir, nýdoktor í kynjafræði við Háskóla Íslands heldur fyrirlestur 6. desember kl. 12-13 í sal Íslenskrar erfðagreiningar.